Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórður S. Gunnarsson er fallinn frá

Þórður S. Gunnarsson er fallinn frá

Þórður S. Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi for­seti laga­deildar Háskól­ans í Reykja­vík og fyrr­ver­andi hér­aðs­dóm­ari, er lát­inn, 77 ára að aldri. Hann lést á Land­spít­al­anum í Fossvogi 17. jan­úar síð­ast­lið­inn eftir stutt veik­indi, sam­kvæmt mbl.is.

Þórður fædd­ist í Reykja­vík 23. jan­úar 1948 og ólst upp víða í borg­inni, meðal ann­ars í Norð­ur­mýr­inni, Laug­ar­ásnum og síðar við Berg­staða­stræti. Kjör­for­eldrar hans voru Ágúst Ólafsson, raf­verk­taki í Reykja­vík, og Bjarn­fríður Sig­ur­jóns­dóttir, hús­freyja. Líf­fræði­legir for­eldrar hans voru Gunnar Ósk­ars­son, mót­töku­stjóri, og fyrri eig­in­kona hans, Guðríður Pét­urs­dóttir, hús­freyja.

Þórður lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík árið 1969 og emb­ætt­is­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 1975. Hann stund­aði fram­halds­nám við Osló­ar­há­skóla árið 1981 á sviði lög­gjafar um órétt­mæta við­skipta­hætti og sam­keppn­is­hömlur. Hann hlaut rétt­indi sem hér­aðs­dóms­lög­maður árið 1977, varð hæsta­rétt­ar­lög­maður árið 1982 og fékk leyfi til verð­bréfa­miðl­unar árið 1993. Auk þess sótti hann fjöl­mörg nám­skeið í lög­fræði, bæði inn­an­lands og erlendis.

Á árunum 1975 til 2002 starf­aði Þórður við fjöl­breytt lög­manns­störf, bæði í eigin rekstri og sem með­eig­andi á lög­manns­stofum. Hann var virkur í opin­berri umræðu um lög­fræði­leg mál­efni, skrif­aði fasta pistla í Vísi á árunum 1981–1982 og fjölda greina í dag­blöð, tíma­rit og fag­rit. Þá var hann vin­sæll fyr­ir­les­ari á sínu sviði.

Þórður gegndi jafn­framt fjöl­mörgum ábyrgðar- og trún­að­ar­störfum. Hann var meðal ann­ars for­maður stjórnar Olís, sat í stjórn Vátrygg­inga­fé­lags Íslands hf. og stýrði siða­nefnd lands­nefndar Alþjóða­versl­un­ar­ráðs­ins um mark­aðs­starf­semi. Þá átti hann sæti í stjórn Ísaga ehf. og Lög­manna­fé­lags Íslands, auk þess sem hann starf­aði í ýmsum opin­berum nefndum vegna reglu­gerð­ar­setn­ingar, laga­frum­varpa og í dóm­nefndum.

Stærsta fram­lag Þórðar til íslensks sam­fé­lags var þó á sviði laga­mennt­unar. Hann kenndi fyrst sem stunda­kenn­ari við við­skipta­deild Háskóla Íslands á árunum 1977–1981 og síðar sem próf­dóm­ari í almennri lög­fræði og rétt­ar­sögu við laga­deild Háskóla Íslands á árunum 1984–2002.

Mikil kafla­skipti urðu árið 1998 þegar Þórður varð fyrsti fast­ráðni starfs­maður fyr­ir­renn­ara Háskól­ans í Reykja­vík og var falið að ann­ast lög­form­lega stofnun skól­ans. Eftir setn­ingu skól­ans hóf hann kennslu í við­skipta­lög­fræði við við­skipta­deild árið 1999, fyrst sem lektor og síðar sem dós­ent.

Snemma árs 2002 lagði Þórður fram hug­mynd að stofnun laga­deildar við Háskól­ann í Reykja­vík. Honum var falið að koma deild­inni á fót, skipu­leggja nám, ráða kenn­ara og móta fram­tíð­ar­sýn hennar. Laga­deildin var form­lega stofnuð sama ár og gegndi Þórður starfi fyrsta for­seta hennar á árunum 2002–2011. Jafn­framt sat hann í fram­kvæmda­stjórn skól­ans og kenndi við deild­ina. Þá var hann for­maður stjórnar Evr­ópu­rétt­ar­stofn­unar Háskól­ans í Reykja­vík og sat í stjórn Rann­sókn­ar­stofn­unar skól­ans í fjár­mála­rétti. Eftir að hann lét af for­seta­starf­inu starf­aði hann áfram við laga­deild­ina sem aðjúnkt.

Árið 2011 var Þórður skip­aður hér­aðs­dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur og gegndi því emb­ætti til árs­ins 2018.

Hann var heið­urs­fé­lagi Association of Fellows and Legal Scholars hjá Center for International Legal Studies og fyrsti heið­urs­fé­lagi Lögréttu, félags laga­nema við Háskól­ann í Reykja­vík. Sá heiður var honum sér­lega kær, enda byggði hann á við­ur­kenn­ingu fyrir kjark til nýsköp­unar, umbóta og óeig­in­gjarnt starf við þróun laga­náms á Íslandi.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Þórðar er Helga Sig­þórs­dóttir, við­skipta­fræð­ingur, og kvænt­ust þau árið 1984. Hann lætur eftir sig dótt­ur­ina Þórunni Helgu Þórð­ar­dóttur, lög­mann, tengda­son­inn Björgvin Grét­ars­son, bygg­inga­tækni­fræð­ing, og barna­börnin Björgvin Þór Björg­vins­son og Þórunni Lovísu Björg­vins­dóttur. Þá lætur hann einnig eftir sig stjúp­son­inn Sigþór Örn Guð­munds­son, tölv­un­ar­fræð­ing, og eig­in­konu hans Elínu Krist­jönu Sig­hvats­dóttur, tölv­un­ar­fræð­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá