Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir, matargæðingur og framkvæmdastjóri Wake Up Reykjavík, og Katrín Björk Kristjánsdóttir, félagsráðgjafi og fyrrverandi forseti Röskvu, eiga von á barni.
Guðný tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í gær. „Mömmur í júlí,“ skrifaði hún við færsluna.
Guðný og Katrín hafa verið saman síðan árið 2018 og trúlofuðu sig í fyrra.
Meðal þeirra sem óska þeim til hamingju eru Lína Birgitta Sigurðardóttir, næringarfræðingurinn Guðrún Nanna Egilsdóttir, leikstjórinn Anna Lísa Hermannsdóttir, samfélagsmiðlastjarnan Helga Margrét Agnarsdóttir og áhrifavaldurinn Tinna Þorradóttir.






















Athugasemdir