Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ungir menn dæmdir fyrir fjölda alvarlegra afbrota

Málið var tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur

Ungir menn dæmdir fyrir fjölda alvarlegra afbrota
Aust­ur­stræti

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt mann í 45 daga skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir röð brota sem náðu yfir tæp­lega tveggja ára tíma­bil, meðal ann­ars lík­ams­árásir, hús­brot, eigna­spjöll, vopna­laga­brot, fíkni­efna­laga­brot, akstur undir áhrifum fíkni­efna og brot gegn lög­reglu­lögum. Sam­verka­maður hans var einnig sak­felldur fyrir lík­ams­árás, hús­brot, eigna­spjöll og vopna­laga­brot, en ákvörðun refs­ingar hans var frestað skil­orðs­bundið.

Afbrota­menn­irnir eru ekki nafn­greindir í dómnum og er senni­legt að það sé vegna ungs ald­urs.

Málið á rætur að rekja til atburða í Kópavogi í apríl 2024. Samkvæmt dóm­inum réðst aðal­mað­ur­inn á tvo ein­stak­linga og sló þá ítrekað í and­lit með þeim afleið­ingum að þeir hlutu áverka. Í fram­hald­inu réð­ust báðir menn­irnir á þriðja ein­stak­ling­inn á heim­ili hans, neit­uðu að yfir­gefa stað­inn þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir og ollu skemmdum á hús­næð­inu. Við brott­för dró annar þeirra upp hníf, lamdi í dyra­staf og úti­dyra­hurð með hnífs­skafti og spark­aði í glugga. Við örygg­is­leit fannst einnig hnífur á hinum ákærða.

Auk þess var aðal­mað­ur­inn sak­felldur fyrir vörslu 2,76 gramma af tóbaks­blönd­uðu kanna­bis­efni, akstur undir áhrifum kanna­bis þar sem magn virka efn­is­ins mæld­ist 5,6 nanógrömm í millí­lítra blóðs og fyrir að hafa hunsað fyr­ir­mæli lög­reglu fyrir utan skemmti­staðin Útópíu við Aust­ur­stræti þar sem hann var með gler­flösku og sýndi ógn­andi hegðun.

Báðir ákærðu ját­uðu sök ský­laust fyrir dómi. Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn meðal ann­ars til ungs ald­urs þeirra, hreinnar játn­ingar og tafa sem urðu á rann­sókn og útgáfu ákæru.

Aðal­mað­ur­inn var jafn­framt dæmdur til að greiða 200 þús­und króna sekt, sæta 18 mán­aða svipt­ingu öku­réttar og upp­töku fíkni­efna og hnífs. Þá voru menn­irnir dæmdir til að greiða einum brota­þola 250 þús­und krónur í miska­bætur sam­eig­in­lega, en aðal­mað­ur­inn einn greiðir tveimur öðrum brota­þolum sam­tals 700 þús­und krónur í miska­bætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina