Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

„2027 lítur vel út“

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Benedikt Freyr Jónsson Er þekktur plötu­snúður og tón­list­ar­maður Mynd: Benedikt Freyr Jónsson/Instgram

Benedikt Freyr Jónsson, plötu­snúður og með­limur íslensku rappsveit­ar­innar For­gotten Lores, hefur á und­an­förnum árum staðið fyrir komu fjöl­margra erlendra rapp­lista­manna til Íslands. Hann segir mark­miðið ekki aðeins vera að halda tón­leika heldur einnig að styrkja íslenska rapp­sen­una og byggja upp menn­ingu í kringum hana.

Áhugi Bene­dikts á tón­leika­haldi og komu erlendra lista­manna til lands­ins nær langt aftur. Hann segir veg­ferð­ina hafa haf­ist í kringum árið 1999 þegar hann aðstoð­aði Robba Kronik við við­burði á vegum Kronik. Árið 2001 flutti hann síðan rappsveit­ina Lone Catalysts til Íslands.

„Fyrir mér þá er þetta partur af því að hafa senu á Íslandi og búa til kúltur,“ segir Benedikt en hann hefur sjálfur flutt inn lista­menn á borð við Mos Def, Talib Kweli og Mobb Deep.

Ástríðan ræður för

Benedikt seg­ist fyrst og fremst velja þá erlendu lista­menn sem sjálfur höfða til hans. Hann flytji inn tón­list­ar­fólk sem hann hlustar á og spilar sjálfur enda sé tón­listin drifin áfram af ástríðu.

Hann telur komu erlendra rapp­ara einnig geta haft jákvæð áhrif á íslenska tón­list­ar­senu. Slíkir við­burðir geti kveikt neista hjá íslenskum lista­mönnum og skapað þeim tæki­færi til að koma fram. Íslenskir rapp­arar hafa meðal ann­ars fengið að hita upp fyrir erlenda lista­menn á við­burð­unum.

Benedikt segir jafn­framt sér­stakt að upp­lifa gleð­ina sem mynd­ast meðal tón­leika­gesta þegar erlendir lista­menn stíga á svið hér á landi.

Spennandi ár framundan

Þegar Benedikt er spurður hvaða lista­menn hann dreymi um að fá til Íslands vill hann ekki gefa mikið upp að svo stöddu. Hann gefur þó sterk­lega til kynna að ýmis­legt sé í bígerð.

„2027 lítur vel út,“ segir hann og bætir við að hann hafi verið í við­ræðum við nokkra lista­menn og unnið að skipu­lagn­ingu í langan tíma.

Hann hvetur áhuga­sama til að fylgj­ast með Live Project á sam­fé­lags­miðlum þar sem frek­ari upp­lýs­ingar verða birtar þegar nær dregur.

Forgotten Lores hefur aldrei hætt

Benedikt er jafn­framt með­limur For­gotten Lores, sem hefur um ára­bil skipað stóran sess í íslenskri rapp­sögu en langt er síðan hljóm­sveitin gaf út lag. Hann segir ýmis­legt vera að ger­ast í kringum hóp­inn og bendir á að For­gotten Lores hafi í raun aldrei hætt störfum

„Bandið er nátt­úru­lega hópur af vinum en ekki beint hljóm­sveit, þess vegna hefur FL aldrei hætt, bara unnið í öðrum hlutum,“ segir Benedikt.

Næsti stóri við­burður Bene­dikts verður á morgun þegar banda­ríska rappsveitin Tha Alka­holiks kemur fram í Iðnó. Íslenska rappsveitin Arkir kemur jafn­framt saman af þessu til­efni og sér um upp­hitun.

Benedikt lofar öfl­ugu kvöldi og segir hágæða rapptón­leika framundan í Iðnó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu