Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu

„Þingið á að vera vett­vangur lýð­ræð­is­legrar umræðu en ekki víg­völlur“

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu
Frá slags­mál­unum Allt brjálað á þing­inu Mynd: YouTube-skjáskot

Harðar stymp­ingar brut­ust út á þingi Armeníu í gær þegar þing­menn stjórn­ar­flokks­ins Civil Contract og stjórn­ar­and­stöðu­flokks­ins Strong Armenia lentu í átökum. Nikol Pas­hinyan, for­sæt­is­ráð­herra Armeníu, seg­ist styðja við­brögð þing­manna síns flokks og segir stjórn­ar­and­stöð­una ekki geta leyft sér að ganga of langt.

Atvikið átti sér stað á meðan þing­fundur var í beinni útsend­ingu. Myndefnið sýndi þing­menn kýla og sparka hver í annan. Vaagn Aleksanyan, vara­for­seti þings­ins, gekk svo langt að kasta stól í átt að þing­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar.

„Ég fagna og styð aðgerðir þing­manna Civil Contract-flokks­ins. Það var við­eig­andi og rétt­læt­an­legt svar að kasta stól eða ein­hverju öðru,“ sagði Pas­hinyan á reglu­legum blaða­manna­fundi.

Hann bætti við að stjórn­völd myndu „brjóta hand­legg­ina“ á hverjum þeim sem reyndi að beita ofbeldi. Það væri skylda stjórn­valda að koma í veg fyrir að lög­leysi ríkti í land­inu.

Anahit Manasyan, umboðs­maður mann­rétt­inda í Armeníu, var ósam­mála afstöðu for­sæt­is­ráð­herr­ans og sagði slík atvik ýta undir við­horf í sam­fé­lag­inu sem rétt­læta ofbeldi.

„Þingið á að vera vett­vangur lýð­ræð­is­legrar umræðu en ekki víg­völlur,“ sagði hún.

Deilur um spillingu leiddu til átaka

Spenna hafði mynd­ast á þing­inu í kjöl­far ræðu Taron Chakhoyan, þing­manns stjórn­ar­flokks­ins Civil Contract. Hann ræddi spill­ingu og nefndi meðal ann­ars Robert Kocharyan, fyrr­ver­andi for­seta Armeníu og leið­toga stjórn­ar­and­stöð­unnar, og sam­starfs­menn hans.

Chakhoyan beindi því næst orðum sínum að Narek Kara­petyan, leið­toga þing­flokks­ins Strong Armenia, og sak­aði ætt­ingja hans um að tengj­ast spill­ingu. Frændi Kara­petyans, auð­kýf­ing­ur­inn Samvel Kara­petyan, sætir meðal ann­ars ásök­unum um umfangs­mikið pen­inga­þvætti og mis­notkun opin­bers valds.

„Fólk sem er sokkið í spill­ingu er núna að predika yfir okkur um spill­ingu og fals­fréttir og halda því fram að ætt­ingjar þeirra hafi orðið fyrir póli­tískum þrýst­ingi stjórn­valda. Herra Kara­petyan, það er ekki mér að kenna að öll fjöl­skylda þín skuli vera í stjórn­málum, þar á meðal frændi þinn, faðir og frændsystk­ini,“ sagði Chakhoyan.

Hann hélt áfram upp­taln­ingu sinni og rifj­aði meðal ann­ars upp umdeild ummæli frænda Nareks Kara­petyans, Sargis Kara­petyan, frá því í febr­úar.

Þá hafði Sargis sagt að í sterkri Armeníu yrðu engar óánægðar konur. Ummælin féllu í umræðum um lýð­fræði­leg vanda­mál og mögu­leik­ann á að stofna sér­stakt kyn­lífs­ráðu­neyti. Þau vöktu mikla gagn­rýni í Armeníu og voru af mörgum talin móðg­andi í garð kvenna.

Eftir ummæli Chakhoyans kall­aði Narek Kara­petyan eitt­hvað að honum úr sæti sínu. Chakhoyan svar­aði með því að segja að Kara­petyan væri „ara frá toppi til táar“, en orðið „ara“ er kunn­ug­legt og niðr­andi ávarp á armensku.

Orða­skiptin þró­uð­ust fljótt yfir í slags­mál. Ruben Rubinyan, for­seti þings­ins, hvatti þing­menn til að róa sig en ákvað að stöðva ekki þing­fund­inn eða beina útsend­ingu.

„Ég ætla ekki að fresta þing­fund­inum. Ég vil að allir sjái þetta,“ sagði hann.

Átökin héldu áfram að harðna og kastaði Aleksanyan þá stólnum í átt að stjórn­ar­and­stöðu­þing­mönn­unum. Að lokum ákvað for­seti þings­ins að gera hlé á fund­inum. Átökin héldu þó áfram um tíma fyrir utan þingsal­inn.

„Við munum brjóta handleggina á þeim“

Pas­hinyan sagði við blaða­menn að hann hefði séð upp­tökur af því hvernig átökin hófust.

„Ef ein­hver heldur að hann geti lagt hendur á þing­mann, barið hann eða gert eitt­hvað annað við hann, þá munum við brjóta á honum hand­legg­inn. Ég segi þetta skýrt og án þess að fara í kringum hlut­ina,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann.

Þegar blaða­menn spurðu hvort það yrði gert með stól svar­aði hann:

„Ef þess þarf, þá með stól. Þeir þurfa að vita sinn stað. Það eru tak­mörk fyrir öllu.“

Pas­hinyan sagði þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar nú upp­skera eins og þeir hefðu sáð, þar sem þeir hefðu ekki brugð­ist rétt við hegðun eigin þing­manna eða for­dæmt hana.

„Svona verður þetta héðan í frá. Í hvert sinn sem þeir haga sér svona fá þeir sömu við­brögð,“ sagði hann.

Mannréttindafulltrúi krefst rannsóknar

Skrif­stofa umboðs­manns mann­rétt­inda í Armeníu sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna atviks­ins. Þar sagði að hvers kyns ofbeldi af hálfu opin­berra starfs­manna, þar á meðal þing­manna, stuðl­aði að því að rétt­læta ofbeldi og gæti leitt til þess að sam­fé­lagið liti á það sem eðli­lega leið til að leysa ágrein­ing.

Manasyan, umboðs­maður mann­rétt­inda, hvatti til þess að allri hegðun sem fæli í sér eða gæfi til kynna beit­ingu ofbeldis yrði hætt, sem og yfir­lýs­ingum sem rétt­lættu slíkt athæfi.

„Þetta atvik verður að sæta við­eig­andi rann­sókn í sam­ræmi við gild­andi laga­legar máls­með­ferð­ar­reglur,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heimur

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Málið vakti talsverða athygli meðal íbúa
Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana