InnlentSvala og Lexi héldu jólin saman – Jólakossinn myndaður25. desember 2022 Hin ástsæla söngkona Svala Björgvins hélt jólin með sínum heittelskaða Lexa. Hún deildi myndum með fylgjendum sínum undir textanum: Jólin með þér. Fjölmargir hafa líkað við færsluna og óskað parinu gleðilegra jóla. Færsluna má sjá hér að neðan. Svala og Lexi kyssast gleðileg jól Mynd/skjáskot af Instagram View this post on Instagram
InnlentRútubílstjóri hjá Hópbílum lék sér með líf erlendra ferðamanna: „Rútan er í gangi og engum er kalt“25. desember 2022 Rútubílstjóri með 32 erlenda ferðamenn skeytti engu um vegalokanir né tilmæli lögreglu og björgunarsveitarmanna, þegar hann ók bifreiðinni og festi hana við Pétursey rétt við Vík í Mýrdal. Rútan situr þar enn. Jón Hermannsson, aðgerðastjóri björguninnar, segir í samtali við fréttastofu RÚV: „Það er engin hætta á ferðum, rútan er í gangi og engum er kalt“. Jón segir jafnframt að...
InnlentHatrammt ruslatunnustríð um jólin á Seltjarnarnesi: „Dóttir mín endaði í læknishöndum“25. desember 2022 Sannkallað ruslatunnustríð er á milli nágranna á Seljarnarnesi. Hanna Kristín Skaftadóttir, móðir á Seltjarnarnesi, greindi frá nágrannaerjunum á Fésbókarsíðu sinni og birti myndskeið þar sem Steingrímur Sævarr Ólafsson almannatengill sést raða ruslatunnum fyrir bifreið Hönnu Kristínar og fjölskyldu hennar. Í færslunni skrifar hún: „Síðastliðna 6 mánuði höfum ég og börnin mín þurft að þola ónæði og árásir með orðum og...
InnlentAllar götur ófærar í Vestmannaeyjum: „Hvetjum fólk til að vera heima og hafa það notalegt“25. desember 2022 Lögreglan í Vestmannaeyjum biðlar til íbúa Vestmannaeyja að halda sig heima við. Mikil úrkoma hefur verið á svæðinu. Sökum skyggnis hafa ökumenn snjóruðningstækja ekki náð að sinna störfum sínum. Hér að neðan má sjá færsluna í heild: Nú er götur ófærar í Vestmannaeyjum og lögregla biðlar til fólks að vera heima. Skyggni er ekki gott og snjóruðningstæki komast ekki strax...
InnlentTvífari Gordon Ramsay gaf „shicken“ kebab í Krónunni: „Óhugnanlega líkur“25. desember 2022 Jewells brá heldur betur í brún í verslunarferð sinni í október síðastliðnum. Hún var stödd í einni af verslunum Krónunnar þegar hún gekk fram á tvífara matreiðslumeistarans Gordon Ramsay sem gaf henni og öðrum viðskiptavinum Krónunnar að smakka grænkera-kjúklingakebab. Eins og Jewells ritar við myndskeiðið sem hún birti: „Hann er óhugnanlega líkur Gordon Ramsay“. Jewells heldur úti allthingsIceland samfélagsmiðlinum TikTok....
SlúðurBubbi veikur25. desember 2022 Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hefur haft þá reglu um áratugaskeið að heimsækja fanga á Litla-Hrauni á jólunum og gleðja þá með söng og hljóðfæraslætti. Þessi jólin varð ekki af heimsókninni vegna þess að Bubbi veiktist. Hann var með stíft tónleikahald í desember og eftir þorláksmessutónleikana var hann orðinn veikur. Hann komst því ekki á Hraunið til að gleðja þá sem þar...
InnlentGul veður viðvörun á Suðausturlandi – Varhugavert fyrir bíla sem taka á sig mikinn vind25. desember 2022 Veðurstofu Íslands hefur spáð gulri veðurviðvörun á Suðausturlandi: Norðan 18-25 m/s og snarpar vindhviður við fjöll, varhugavert fyrir bíla sem taka á sig mikinn vind Snjókoma og síðar él norðan- og austantil, en léttir smám saman til sunnan- og suðvestanlands. Frost 1 til 10 stig. Minnkandi vindur og ofankoma í nótt og í fyrramálið en vaxandi austan og suðaustanátt vestantil...
InnlentÓsáttir foreldrar óku á jólanótt með börnin bundin aftan í bifreiðina25. desember 2022 Í nótt var tilkynnt um utanvegaakstur í skíðabrekkunni í Breiðholti. Þar voru að verki foreldrar á bifreið sinni að draga börn sín á sleða í skíðabrekkunni. Lögregla ræddi við þau sem voru mjög ósátt við að þurfa að hætta að aka með börn í eftirdragi en kváðust ætla að fylgja fyrirmælum. Þá þurfti lögregla einnig að benda á að ökutæki...
InnlentGleðilega hátíð kæru lesendur24. desember 2022 Mannlíf óskar lesendum sínum gleðilegra jóla og þakkar samfylgdina það sem af er ári. Munum að nota jólin til að njóta lífsins og efla tengslin við vini og ættingja. Gleymum amstri hversdagsins um stund og ræktum vináttu og góðmennsku. Ekki gleyma þeim sem eiga undir högg að sækja í samfélaginu og ekki gleyma smáfuglunum. Munum að þetta er hátíð friðar...
MenningHrefnu-Konni dregur ekkert undan: Sýslumaðurinn vísaði konunni á ólöglega kjötið SEINNI HLUTI24. desember 2022 Í seinni hluta viðtalsins við Konráð Eggertsson, Hrefnu Konna, fer hann yfir sjómennskuna og hrefnuveiðarnar. Bannárin voru erfið en þá var samt veitt. Hann fór fyrst til sjós 1958, þá 15 ára gamall, á Dynjanda. Það var saltaði í húsi við bryggjuna og tvær áhafnir gistu á efri hæðinni. Þar voru tvær ráðskonur en þær gistu annarsstaðar; í Sætúni hjá...
SlúðurStærsta jólagjöf Erlu24. desember 2022 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra brást hárrétt við þegar hújn bað Erlu Bolladóttur fyrirgefningar fyrir hönd þjóðarinnar og greiddi henni rúmar 30 milljónir króna í bætur fyrir þá þjáningu sem gæsluvarðhaldið vegna hvarfs Geirfinns Einarssonar hefur valdið henni. Aðrir sakborningar í málinu höfðu þegar fengið bætur en Erla var sniðgengin. Erla lýsti baráttu sinni í viðtali við Mannlíf í haust. Hún sagði...
InnlentSeinheppinn og kulvís jólagjafaþjófur í Smáralind – Vitstola maður réðst á bíla í Árbænum24. desember 2022 Jólagjafaþjófur var á ferð í Smáralind Kópavogi í gær. Hann rændi jólapakka með nýjum fötum. Þjófurinn hefur væntanlega verið kulvís því hann greip með sér úlpu áður en hann hraðaði sér á brott. Vandi þjófsins var sá að athæfi hans náðist á öryggismyndavélar. Lögreglan veit hver hann er og bíður færis að svipta hann úlpu og öðrum ránsfeng. Annar þjófur...
InnlentÞorláksmessuslagurinn 1968 – Er ungkommar slógust við lögregluna23. desember 2022 Það var á Þorláksmessu árið 1968 að mótmælaganga var haldin í Reykjavík gegn Víetnam stríðinu sem þá stóð yfir. Lögreglan var ósátt við þá leið sem ganga átti með tilheyrandi truflunum í jólaösinni og sló í brýnu á milli mótmælendanna og lögreglunnar. Um 12 einstaklingar voru handteknir en nokkir einstaklingar úr báðum fylkingum hlutu minniháttar meiðsli. Hefur þetta kvöld verið...
Heimur„Of mikið að gefa fyrrverandi forseta færi á að gera sig gildandi sem einræðisherra“23. desember 2022 Fyrrum forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, ætti ekki að fá að bjóða sig aftur fram í opinberrar stöðu eftir að hafa átt þátt í tilraun til valdaráns í landinu. Er þetta mat rannsóknarnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sem sett var á fót vegna árásinnar á þinghúsið í janúar í fyrra, þar sem fylgjendur Trump réðust af hörku inn í þinghúsið. Er þetta á...
InnlentAnna Kristjáns: „Náðum að komast í jólamatinn, skítug og illa þefjandi á aðfangadagskvöld“23. desember 2022 Anna Kristjánsdóttir býr á Tenerife og er þekkt fyrir afar skemmtilega pistla sína frá því sem er stundum kallað „litla-Ísland.“ „Ég man eitt sinn er við vorum að lesta í Halifax í Nova Scotia í Kanada í snarvitlausu veðri á Þorláksmessu og það þurfti tvo dráttarbáta til að halda við skipið á meðan lestunin fór fram og síðan beint á...
Innlent„Megi þessi dómur verða lexía þeim sem ónáða dómstóla með óþarfa málarekstri af þessu tagi“23. desember 2022 Brynjólfur Guðmundsson fréttamaður á RÚV ritar pistil í hópnum Fjölmiðlanördar á Facebook. Segir: „Fjölmiðlanördar gætu haft áhuga á að lesa þennan dóm, sérstaklega niðurstöðukaflann. Sex árum eftir að Kastljóss fletti ofan af viðskiptaháttum Brúneggja kemur dómur í skaðabótamáli sem forsvarsmenn þess höfðuðu gegn RÚV og MAST.“ Brynjólfur segir að „fréttamennskan á sínum tíma var fyrsta flokks og það er í...