Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Þorláksmessuslagurinn 1968 – Er ungkommar slógust við lögregluna

Mótmælendur á meðan allt lék í lyndi
Mót­mæl­endur á meðan allt lék í lyndi Mynd: Lubbi

Það var á Þorláks­messu árið 1968 að mótmæla­ganga var haldin í Reykjavík gegn Víetnam stríðinu sem þá stóð yfir. Lögreglan var ósátt við þá leið sem ganga átti með tilheyrandi truflunum í jóla­ösinni og sló í brýnu á milli mótmælendanna og lögreglunnar. Um 12 einstaklingar voru hand­teknir en nokkir einstaklingar úr báðum fylkingum hlutu minni­háttar meiðsli. Hefur þetta kvöld verið kallað Þorláks­messu­slagurinn.

Birna Þórðar?

Fremst í flokki mótmælenda voru þau Birna Þórðar­dóttir og Ragnar Stef­ánsson eða Raggi skjálfti eins og hann er yfirleitt kallaður en hann er einn helsti jarð­skjálfta­fræðingur landsins.

Morgun­blaðið fjallaði um málið en glöggir lesendur gætu tekið eftir hægri slagsíðu í umfjöllun þeirra. Hér er eftir­farandi frétt Morgunblaðins frá 1968:

Stympingar í Austur­stræti

Takmark göngu­fólks að komast í kast við lögregluna, sem naut stuðnings almennings

ENN SLÓ í brýnu milli lögreglu­þjóna og félaga úr Æskulýðs­fylkingunni og Félagi róttækra stúdenta á Þorláks­messu­kvöld. Félögin tvö höfðu fyrr um daginn tilkynnt lögreglunni, að farin yrði mótmæla­ganga frá Sigtúni, og m.a. upp Banka­stræti og Skólavörðu­stíg. Lögreglan tilkynnti félögunum, að hún myndi ekki Ieyfa göngunni að trufla almenna umferð, en stakk upp á því, að í stað þess að fara upp Banka­stræti og Skólavörðu­stíg færi gangan upp Hverfis­götu og um Ingólfs­stræti, en því höfnuðu félögin tvö algjör­lega. Virðist því frið­samleg mótmæla­ganga alls ekki hafa verið takmark félaganna tveggja heldur það eitt að valda erfið­leikum í jóla­ösinni og lenda í kasti við lögregluna. — Má benda á, að þetta er ekki í fyrsta skipti, sem félagar í Æskulýðs­fylkingunni velja öðrum fremur anna­samari daga hjá lögreglunni til að fara með óspektum um götur borgarinnar. Er þar skemmst að minnast átakanna, sem urðu við Reykja­víkurhöfn á H-dag í sumar. Þorri viðstaddra, sem fylgdust með stympingunum á Þorláks­messu­kvöld, var á bandi lögreglunnar og virtist yfirleitt hafa andstyggð á framferði göngu­fólksins. Lögðu ýmsir lögreglunni lið í stympingunum.

Á Þorláks­messu var dreift um borgina fundar­boði frá Æskulýðs­fylkingunni og Félagi róttækra stúdenta um almennan fund í Sigtúni kl. 20,30 um kvöldið. — Sama dag var lögreglu­stjóra afhent bréf, sem í var tilkynnt, að félögin tvö myndu fara í mótmæla­göngu að fundinum loknum; frá Sigtúni um Austur­stræti, Banka­stræti, Skólavörðu­stíg, Frakka­stíg, Laugaveg og Banka­stræti og ljúka göngunni á Lækjar­torgi, þar sem stutt ávarp yrði flutt. Bréf þetta var undir­ritað af Birnu Þórðar­dóttur (sú sem fékk skeinuna sl. laugardag og hrópaði þá: Hvar er sjón­varpið!) fyrir hönd Félags róttækra stúdenta og Leifi Jóelssyni fyrir hönd Æskulýðs­fylkingarinnar. Þetta kvöld hafði verið auglýst sérstök takmörkun á umferð í Reykjavík, m.a. lokun miðborgarinnar fyrir bílum, og aðrar sérstakar ráðstafanir gerðar til að greiða fyrir umferð á öllum helztu umferðar­götum, þ.á.m. þeim sem félögin tvö hugðust ganga eftir. Þar sem sýnt var, að gangan myndi valda verulegri truflun á allri umferð hafði Bjarki Elíasson, yfir­lögreglu­þjónn, samband við Leif Jóelsson og fór fram á það við hann, að göngu­leiðinni yrði breytt til samrœmis við auglýstar umferðar­takmarkanir.

Stakk Bjarki upp á því við Leif að gengið yrði t.d. um Austur­stræti, Hafnar­stræti og Aðal­stræti, en því hafnaði umboðs­maður Æskulýðs­fylkingarinnar. Þá bauð Bjarki að gengið yrði um Austur­stræti, Lækjar­torg, Hverfis­götu, Ingólfs­stræti, Banka­stræti og niður á Lækjar­torg og bað umboðs­maður Æskulýðs­fylkingarinnar um frest til að bera þessa tillögu undir félaga sína. Þegar sá frestur var útrunninn hringdi umboðs­maðurinn og bað um lengri frest, sem lögreglan veitti tafar­laust. Loks kl. 21,35 um kvöldið hringdi umboðs­maðurinn svo og tilkynnti, að gengin yrði sú leið, sem félögin tvö í upphafi völdu og að hann væri ekki til viðræðu um neinar breytingar þar á. Tjáði Bjarki honum þá, að hann lýsti fullri ábyrgð á hendur honum og ennfremur, að lögreglan myndi bindra gönguna í að fara upp Banka­stræti; á móti allri almennri umferð. Svaraði umboðs­maðurinn því til, að lögreglan gæti aldrei hindrað göngu fólkið; félögin tvö hefðu á að skipa 1000 manna liði, sem myndi brjóta sér leið, ef með þyrfti.

Um 50 lögreglu­þjónar fóru svo undir stjórn Bjarka Elíassonar út á Lækjar­torg og mynduðu þrefalda röð yfir Austur­stræti við gatnamót Lækjar­götu. Mikil umferð gangandi fólks var og safnaðist margt fólk saman, þegar það sá viðbúnað lögreglunnar. Klukkan 22,10 kom svo gangan austur Austur­stræti og bar göngufólk íslenzka fánann og ýmis spjöld. Fremstur gekk Ragnar Stef­ánsson, jarð­skjálfta­fræðingur og forseti Æskulýðs­fylkingarinnar, og bar hann gjallarhom, sem hann hvatti með göngu­fólkið til að brjóta sér leið gegn um raðir lögreglunnar. í fremstu röð gengu hjú þau, sem undir­rituðu bréfið til lögreglu­stjóra og fyrr hefur verið minnzt á. Þegar göngu­fólkið hugðist brjóta sér leið hófust stympingar milli þess og lögreglunnar. Fyrr nefndur Æskulýðs­fylkingar­forseti klifraði upp á grindverk og þaðan hvatti hann lið sitt til að ganga hraustlega fram gegn vörðum laganna. Var hann beðinn að hætta þessum hrópum en hann neitaði og var þá fjar­lægður við fögnuð nærstaddra vegfarenda. Lögreglan hrakti svo göngu­fólkið hægt en markvisst vestur Austur­stræti og eftir um það bil klukku­stund var kornið vestur að Pósthús­stræti. Var þá fátt göngufólk eftir og öll spjöld horfin. Allmargir óbreyttir borgarar lögðu lögreglunni lið í stympingum þessum og varð lögreglan að hafa hemil á sumum þeirra, sem vildu ganga of lang í aðgerðum gegn göngu­fólkinu. Þorri viðstaddra sem með stympingunum fylgdist, virtist vera á bandi lögreglunnar Um ellefu leytið var komin á ró í miðborginni og umferð aftur með eðlilegum hætti. Tólf göngumenn voru fjar­lægðir vegna ýmiss konar afbrota. Þrír lögreglu­menn þurftu læknis meðferðar við, en þeir hlutu slœm spörk og högg frá göngu­fólkinu. Enginn þeirra meiddist þó alvarlega. Ennfremur vann göngufólk miklar skemmdir á fötum lögregumanna, reif þau og skar og sleit af lögreglu­þjónum einkenni. Þá köstuðu sumir eggjum að lögreglu­mönnum, en þeir sem ekkert höfðu við hendina hræktu. Ekki var lögreglunni í gær kunnugt um, að neinn göngu­maður hefði meiðzt illa, en einhverjir munu hafa kornið í Slysa­varðstofuna á Þorláks­messu­kvöld til að fá búið um meiðsi, sem þeir höfðu hlotið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja