„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“ Svavar Knútur Kristinsson
InnlentLausn frá sligandi húsnæðisláni: Þú greiðir 327 þúsund meira af láni með föstum vöxtum27. júní 2022 Margir lántakar huga að því að festa vexti á lánum sínum vegna ótta við miklar vaxtahækkanir sem liggja í loftinu. Getur það reynst verulega kostnaðarsamt og munurinn hlaupið á fleiri hundruð þúsundum á ári. Á fasteignalánum er í boði að festa vexti en það þýðir að vextir lánsins haldast óbreyttir á gildistíma þeirra. Ýmist er í boði að festa vexti...
InnlentBrynjar telur rétt að banna þungunarrof – Kallar konur „leghafa“27. júní 2022 „Ég vil taka það fram að þótt ég telji niðurstöðu hæstaréttar Bandaríkjanna rétta er ég ekki á móti fóstureyðingum eða þungunarrofi og hef aldrei verið. Ég tel það mikilvæg réttindi leghafa þótt það séu ekki mannréttindi í eiginlegum skilningi. En ég geri mikinn mun á frjóvgaðri frumu í legi og barni sem gæti lifað án leghafa þegar kemur að heimild...
MenningPink skýtur föstum skotum: „Aldrei fokking hlusta á tónlistina mína framar“27. júní 2022 „Höfum eitt á hreinu: Ef þú trúir því að ríkið hafi eitthvað að gera með leg kvenna, einkalíf eða hjónaband samkynhneigðra, eða að kynþáttafordómar séu í lagi – ÞÁ VINSAMLEGAST, Í GUÐS ÞÍNS NAFNI, ALDREI FOKKING HLUSTA Á TÓNLISTINA MÍNA FRAMAR,“ skrifaði bandaríska tónlistarkonan Pink á Twitter eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna sneri við fordæmisgefandi dómi Roe gegn Wade fyrir helgi,...
MenningHarry prins enn í uppáhaldi drottningarinnar – „Hún dýrkar hann“27. júní 2022 Harry prins er enn í miklu uppáhaldi hjá Elísabetu drottingu ef marka má heimildarmann People. „Ef Harry spyr, segir drottningin já,“ segir heimildarmaðurinn um samband drottningarinnar og Harrys. „Hún dýrkar hann.“ Harry tók ákvörðun um að hætta að sinna skyldum sem hluti af konunglegu fjölskyldunni stuttu eftir að hann giftist Meghan Markle. Ákvörðun hans féll í grýttan jarðveg, ekki síst...
HeimurÞetta er hlutfall barna sem sjá skaðlegt efni á netinu – Kynþáttafordómar, ofbeldi og líkamsímynd27. júní 2022 Samkvæmt niðurstöðum úr rannsókn Ofcom kemur fram að tveir þriðju ungmenna, á aldrinum 13 til 17 ára, sjái skaðlegt efni á netinu. Aðeins 16% þeirra segja frá því eða tilkynna efnið. Hefur samskiptaeftirlitið í Bretlandi skorað á ungt fólk að tilkynna skaðlegt efni á netinu og vernda þannig hvert annað. Blaðamenn Sky News fjölluðu um málið og hittu hóp ungs...
SlúðurSvala faðmar nettröll27. júní 2022 Tónlistarkonan Svala Björgvins er á meðal þeirra bestu hérlendis. Í samræmi við vinsældirnar er hún gjarnan til umfjöllunar í fjölmiðlum. Undanfarin ár hafa ástarmál hennar verið víða til umfjöllunar. Þannig vakti mikla athygli þegar hún og sjómaðurinn ungi, Kristján Einar Sigurbjörnsson, urðu par. Það endaði illa eftir að Kristján var handtekinn á Spáni. Fyrir helgi tilkynnti hún á samfélagsmiðlum að...
InnlentBarn ók vélhjóli á móti umferð – Þjófar á flótta frá ráni í lyfjabúð27. júní 2022 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna umferðaróhapps í gærkvöldi. Þar hafði drengur á vélhjóli, ekið á móti umferð, með þeim afleiðingum að hann hafnaði framan á bifreið. Ökumaður vélhjólsins reyndi strax að setja hjólið aftur í gang og gerði sig líklegan til þess að flýja af vettvangi. Kom í ljós að drengurinn var fimmtán ára gamall og án ökuréttinda....
InnlentBannað að auglýsa nikótínvörur – Heiðar segir bannið hamla fjölmiðla27. júní 2022 Bannað hefur verið að auglýsa nikótínpúða og aðrar nikótínvörur hér á landi. Kemur það fram í nýsamþykktu frumvarpi heilbrigðisráðherra þar sem breyting var gerð á lögum um rafrettur. Þrátt fyrir bannið, nær það ekki til samélagsmiðla né erlendra miðla, og því útilokað að stöðva slíkar auglýsingar. Þá hafa íslenskir fjölmiðlar gagnrýnt bannið töluvert er kemur fram í umfjöllun Morgunblaðisins í...
InnlentEiríkur fékk óhugnanlega tölvupóst – „Fullt af fólki hatar og eða fyrirlíta Pólverja“26. júní 2022 Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrverandi prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, deilir á Facebook nafnlausum tölvupóst sem honum barst eftir að hann kom fjallkonunni til varnar. Fjallkonan í ár var Sylwia Zajkowska en hún er af pólsku bergi brotin. Hún flutti ávarpið með hreim og fór það fyrir brjóstið á sumum. Eiríkur var ekki þar á meðal. Þetta ræddi hann í...
InnlentSteingrímur snýr aftur: „Er þetta eitthvert grín?“26. júní 2022 Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður VG og þingmaður um áratugaskeið, mun leiða stýrihóp ríkisstjórnarinnar sem á að taka örorkulífeyriskerfið í gegn. Steingrímur sat á þingi frá árinu 1983 þar til í fyrra. Með honum í þessum stýrihópi verða svo Henný Hinz, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, Óli Björn Kárason, Sjálfstæðismaður og Eygló Harðardóttir, Framsóknarkona. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins en þar segir...
MenningGestur Guðna er Herdís Magna Gunnarsdóttir: Nokkuð góður erfðafjölbreytileiki í íslenska kúakyninu26. júní 2022 Nú ertu orðin forystumaður í Landssambandi kúabænda. „Við höfum sameinast Bændasamtökunum eins og önnur búgreinarfélög. Ég er formaður Búgreinadeildar nautgripabænda í Bændasamtökunum og er nýlega orðin varaformaður Bændasamtakanna,“ segir Herdís Magna Gunnarsdóttir í viðtali við Guðna Ágústsson þar sem þau ræða um ýmis málefni kúabænda og landbúnaðarins. Hér fyrir neðan er tekið úr viðtalinu varðandi kúabúskap og nautgriparækt. Kúabúskapurinn hefur...
InnlentMaður ógnaði börnum með hníf í Grafarvogi26. júní 2022 Karlmaður í Veghúsum í Grafarvogi er sagður hafa ógnað fjórum með hníf, þar af tveimur börnum, í gærkvöld. Mikil viðbúnaður var í hverfinu í gær vegna málsins. Sérsveitin var kölluð út og handtók manninn. Lögreglan hefur lítið tjáð sig um atvikið og því margt óljóst. Á vef RÚV er fullyrt að maðurinn hafi ógnað heimilisfólki. Vísir segir manninn hafa dregið...
InnlentUngur drengur í annarlegu ástandi réðst á tvær stúlkur – Gekk berserksgang í Nettó í Lágmúla26. júní 2022 Liðin nótt var ekki friðsöm ef marka má dagbók lögreglu. Lögregla greinir þar frá tveimur alvarlegum ofbeldisbrotum sem áttu sér stað í Reykjavík. Svo voru þrír innbrotsþjófar gripnir glóðvolgir í Kópavogi og Árbæ. Mikið var um ölvunar- og vímuakstur, líkt og flestar helgar. Stuttu fyrir miðnætti barst lögreglu tilkynning um líkamsárás í hverfi 108, Bústaðahverfi. Lögregla segir að þar hafi...
SlúðurÓvissa hjá Loga Bergmann26. júní 2022 Mál Vítalíu Lazereva á hendur fimmmenningunum sem sakaðir eru um að hafa áreitt hana í á hóteli í Borgarfirði og sumarbústað í Skorradal hefur enn ekki litið dagsins ljós. Vítalía hefur margsagt að hún hafi kært mennina sem um ræðir eða að minnsta kosti suma þeirra. Mál hennr skók íslenskt samfélag. Afleiðingar yfirlýsinga Vítalíu fyrir þá sem koma við sögu...
InnlentBylgja varar við tjaldsvæðinu á Akureyri: „Bólgurnar létu mig líta út eins og fílamanninn“25. júní 2022 Bylgja Guðrún Brynjólfsdóttir segir að allir sem eru með lélegt ónæmiskerfi ættu að halda sig fjarri tjaldsvæðinu á Akureyri, Grímsnesinu og Hömrum. Hún birtir sláandi myndir af sjálfri sér í Facebook-hópnum Lúsmý á Íslandi. Ljóst er að Bylgja var illa leikinn eftir þessi illvígu kvikindi eftir dvöl á tjaldsvæðinu. Bylgja segir ekki þverfótað fyrir lúsmý á Grímsnesinu. „Þið sem eruð...
HeimurSjálfsprottin Gleðiganga í Osló – Norðmenn láta sér ekki segjast og fagna í skugga hryðjuverka25. júní 2022 Skipuleggjendur gleðigöngunnar í Osló tilkynntu í morgun að göngunni sem og öðrum hátíðarhöldum yrði aflýst vegna atburða næturnar. Byssumaður drap tvær manneskjur og særði hátt í tuttugu manns, en talið er að árásin hafi beinst gegn hinsegin fólki. Skipuleggjendur sögðu þessa ákvörðun hafa verið tekna samkvæmt tilmælum lögreglu. Håvve Fjell, Norðmaður.Mynd: NRK.no Þessi ákvörðun hefur farið illa í marga, þar...