Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Gestur Guðna er Herdís Magna Gunnarsdóttir: Nokkuð góður erfðafjölbreytileiki í íslenska kúakyninu

Nú ertu orðin forystu­maður í Lands­sambandi kúabænda.

„Við höfum sameinast Bænda­samtökunum eins og önnur búgreinar­félög. Ég er formaður Búgreina­deildar nautgripa­bænda í Bænda­samtökunum og er nýlega orðin vara­formaður Bænda­samtakanna,“ segir Herdís Magna Gunnars­dóttir í viðtali við Guðna Ágústsson þar sem þau ræða um ýmis málefni kúabænda og land­búnaðarins. Hér fyrir neðan er tekið úr viðtalinu varðandi kúabúskap og naut­griparækt.

Kúabú­skapurinn hefur þróast með miklum hraða á þessari öld. Hvernig sérðu hann fyrir þér?

Þetta hefur fylgt þess­ari tækni­fram­för eða bylt­ingu.

„Maður vill ekki taka of stóra ábyrgð á því að segja hvernig þetta verður. Kúabúum hefur fækkað mikið og hratt en þau hafa stækkað og það er sama þróun og við sjáum alls staðar annars staðar og ég held að það sé óhjákvæmilegt að þeim muni fækka meira. Við sjáum fram á það. En svo á maður von á að það nái einhverju jafnvægi og meiri stöðnun. En þetta hefur fylgt þessari tækni­framför eða byltingu.“

Það er gríðarleg tækni­breyting. Þetta er nútíma­fjós.

„Já, það er mikill munur frá því sem var áður. Þú kannski gast byggt til að bæta við nokkrum básum og þar af leiðandi líka bætt við smákvóta en núna þarftu alltaf helst að byggja fyrir einn róbóta í einu og það eru kannski 60 kýr. Þannig að þetta stækkar í stærri einingum.“

Herdís segir að Íslendingar eigi heimsmet í hlutfalli af mjólk sem kemur úr róbótum. „Það er hvergi annars staðar jafnhátt hlutfall af mjólkinni sem kemur inn í hverju landi úr mjalta­þjónum.“ Herdís, sem er bóndi á Egils­stöðum sem hefur verið í ættinni í nokkrar kynslóðir, segir að hún hafi verið 14 ára þegar foreldrar hennar byggðu nýtt fjós og minnir hana að það hafi verið annað fjósið til þess að kaupa mjalta­þjón til Íslands.

Hvað í ósköpunum hefur gerst með íslensku kúna? Allt í einu er hún farin að mjólka upp í 14.000 lítra. Og þegar ég var strákur þótti met að fara yfir 4.000. Er þetta aðbúnaðurinn eða er þetta ræktunar­starfið?

Aðbún­að­ur­inn er nátt­úr­lega allt annar og við höfum náð árangri í rækt­un­ar­starfi.

„Aðbúnaðurinn, þekkingin og þróunin í fóður­öfluninni. Aðbúnaðurinn er nátt­úrlega allt annar og við höfum náð árangri í ræktunar­starfi; gríðar­legum vil ég meina.“

Kúabú­skapurinn hefur batnað mjög. Eru bændurnir mjög vakandi og í eilífri þróun og lærdómi við að mennta sig áfram?

„Já, ég vil leyfa mér að segja það. Auðvitað er það mismun­andi milli einstaklinga eins og alls staðar annars staðar í öllum greinum. En já, það er alltaf verið að leita einhverrar þróunar áfram og bæta tækni og nýtingu.“

Menn eru ekki lengur að tala um norskt kúakyn.

Þá var tekin þessi ákvörðun að fara í stærri verk­efni til að rækta áfram kúa­kynið.

„Það blossaði aftur upp á síðasta búgreina­þingi. Það var verið að rifja það upp. Pabbi talaði mikið fyrir norska kúakyninu á sínum tíma en við verðum að horfa á það að bændur hafa sameinast um það. Það hefur verið fundað um þetta og mikið tekist á. Það er ákvörðun bænda að flytja ekki inn norskt kúakyn. Og þá var tekin þessi ákvörðun að fara í stærri verkefni til að rækta áfram kúakynið. Og við erum farin að sjá að veruleika þetta stóra verkefni sem felst í að það er búið að greina erfða­mengi íslensku kýrinnar og þá er hægt að taka DNA-sýni þegar gripirnir fæðast og við getum séð hversu efnilegir þeir verða. Þetta styttir ættliða­bilið úr sjö árum í tvö af því að við þurftum alltaf að fá naut og ná úr því sæði, það þurftu að koma kálfar og þeir þurftu að verða að kúm til þess að hægt væri að dæma hve afkvæmin væru góð eins og þetta er í dag. En þetta byrjaði í vor og fá bændur merki; við pöntum okkar merki og tökum sýni úr öllum kvígum sem fæðast og sendum til greiningar og svo fáum við greiningu til baka. Þetta er ofboðs­lega spennandi og gaman.“

Skyldleika­rækt er ekkert að há íslenska kúastofninum? „Nei, nefnilega ekki. Minna en maður hefði kannski haldið. En það er nokkuð góður erfða­fjöl­breytileiki í íslenska kúakyninu.“

Eftirspurn eftir góðu nautakjöti

Nú ertu ekki bara að sjá um kýrnar og kúabændur. Undir þinn lið heyrir líka hin nýja atvinna sem hefði kannski átt að koma löngu fyrr: Að framleiða nautakjöt.

Svo hafa verið fluttir inn fóst­ur­vísar hingað til Íslands.

„Það hefur stundum verið sagt að nauta­kjötið hafi verið ákveðin aukaafurð af mjólkur­fram­leiðslunni. En það má ekki misskiljast. Ég hef áttaði mig á að það hafi verið misskilningur. Fólk heldur að það hafi verið fæddir kálfar til þess að lóga þeim en þeir hafa verið aldir. En nú er alltaf að stóraukast meiri fagmennska í nautakjöts­fram­leiðslunni. Það hefur áður verið flutt inn erlent holdakyn; það var Galloway, síðan Angus og síðan núna erum við að fá nýtt erfðaefni frá Angus; frá Noregi. Það er samtíningur af því besta í heiminum. Í Noregi taka þeir frá öðrum löndum og rækta þar upp og það er með bestu „angusum“ í heiminum. Svo hafa verið fluttir inn fóstur­vísar hingað til Íslands. Núna í vor erum við að fá fyrsta kjötið af þessum nýju gripum frá bændum á markað. Þetta er nýr atvinnu­vegur í land­búnaðinum og hefur verið ákveðin vöntun og mikil eftir­spurn. Það selst allt nautakjöt í landinu. Mig minnir að við séum með 80% hlutdeild í nauta­kjöti. Og nátt­úrlega er mikið flutt inn líka. Það er alltaf eftir­spurn eftir góðu nauta­kjöti.“

Kjötsalar segja að það vanti kjöt, ekki síst nautakjöt.

Við höfum séð verð á nauta­kjöti úti í búð fara hækk­andi jafnt og þétt.

„Já, það er það sem við höfum verið að sjá og það er jafnvel líka erfitt að nálgast það erlendis. Það hefur verið slæm þróun í nautakjöts­fram­leiðslunni. Það hefur ekki verið passað nægilega vel upp á þetta. Þegar tolla­samningurinn við Evrópu­sambandið tók gildi þá hefur það þær afleiðingar að toll­kvótar fyrir nautakjöt hafa aukist um 600% síðan 2016. Það er ofboðs­lega mikið magn og aukin samkeppni en engu að síður átta ég mig ekki alveg á af hverju það þarf endilega að þýða að afurða­verð til bænda og fram­leiðenda hefur lækkað jafnt og þétt á þessum tíma. Og rökin fyrir því að opna fyrir innflutning eru oftast þau að það eigi að lækka verð. En við höfum séð verð á nauta­kjöti úti í búð fara hækkandi jafnt og þétt síðan þetta gerðist og auðvitað vísitölu neyslu­verðs á sama tíma. En á sama tíma lækkar verðið til bænda. Þetta var nátt­úrlega það sem var varað við. Það var ástæða fyrir því að bændur voru að berjast gegn þessu. Þetta hefur haft þær afleiðingar að afurða­verð til bændanna hefur lækkað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt