Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Brynjar telur rétt að banna þungunarrof – Kallar konur „leghafa“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

„Ég vil taka það fram að þótt ég telji niður­stöðu hæstaréttar Banda­ríkjanna rétta er ég ekki á móti fóstur­eyðingum eða þungunar­rofi og hef aldrei verið. Ég tel það mikilvæg réttindi  leghafa þótt það séu ekki mann­réttindi í eigin­legum skilningi. En ég geri mikinn mun á frjóvgaðri frumu í legi og barni sem gæti lifað án leghafa þegar kemur að heimild til þungunar­rofs, þótt það geti verið réttlætanlegt fram að fæðingu í vissum tilvikum,“ skrifaði Brynjar Níelsson á Facebook-síðu sína í gær. Færslan hefur vakið mikla athygli og reiði meðal fólks og hafa margir skrifað athugasemd við pistilinn. Ein þeirra er Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir,rithöfundur og fyrrum stjórmálamaður, en skrifar hún: „Leghafa? Getum við þó ekki að minnsta kosti komið okkur saman um að það séu konurnar sem gangi með börnin?“

Brynjar svarar þá Ólínu og skrifar: „Jú, þetta átti að vera kaldhæðni.“ Niður­staða hæstaréttar Banda­ríkjanna, um þungunarrof, hefur vakið reiði og víða hafa verið fjölmenn mótmæli vegna þessa. Þá er yfir­gnæfandi meirihluti Bandaríkja­manna  hlynntur því að konur hafi aðgang að fóstur­eyðingum. Þrátt fyrir alvarleika málefnisins, virðist Brynjar skemmta sér yfir því að hlusta á fólk tjá sig um niður­stöðuna.

„Skemmtilegt að hlusta á kynja­fræðinga, og aðra sem halda að þeirra pólitík séu fræði og vísindi, fjalla um niður­stöðu hæstaréttar Banda­ríkjanna um þungunarrof. Rang­færslur og misskilningur er áberandi í umræðunni. Hæstiréttur Banda­ríkjanna er einfald­lega að segja að þungunarrof sé ekki stjórnar­skrár­varinn réttur heldur er það kjörinna fulltrúa að ákveða með lögum réttindi til þungunar­rofs og reglur þar um. Þannig virkar nefnilega lýðræðið. Ef Bandaríkja­menn vilja að þungunarrof verði stjórnar­skrár­varinn réttur er rétt að þeir breyti og bæti við stjórnar­skrána um það.“
Að lokum spyr hann hversu lengi hugtakið mann­réttindi fái að lifa. „Hvað ætlar þessi kynlausi nútími að leyfa hugtakinu mann­réttindi að lifa lengi? Hvað segja allir kynja­fræðingarnir og þeir á RUV um það?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá