SkoðunEva H. BaldursdóttirFramtíðarsýn21. ágúst 2019 Maður án framtíðarsýnar mun alltaf fara baka til fortíðar segir frægt máltæki. Upphafsspurning hvers ferðalags er gjarnan hvert er förinni heitið. Það er hægt að láta sig fljóta niður ána án áfangastaðar, en í því er jafnframt fólginn ákveðinn galdur. Líklega liggur sannleikurinn í jafnvæginu. Hafa augun á áfangastað og hafa til þess árar, en á sama tíma hafa þann...
SkoðunAðsend greinSkyldusparnaður skattaprinsins19. ágúst 2019 Skoðun Eftir / Konráð Guðjónsson Á hátíðis- og tyllidögum, til dæmis á kjördag yfir hnallþórum og rjúkandi heitu kaffi, tala stjórnmálamenn hispurslaust um mikilvægi þess að lækka skatta á landsmenn. Um viljann skal ekki efast, en eins og allir vita sem hafa skemmt sér í góðra vina hópi, eru yfirlýsingar í slíkum gleðskap eitthvað sem ætti að taka með fyrirvara....
SkoðunAðsend greinBoléro og pabbi18. ágúst 2019 Síðast en ekki síst Eftir / Óttar M. Norðfjörð Pabbi elskaði klassíska tónlist. Hann var arkitekt og rak stofuna sína frá efri hæðinni heima hjá okkur og ef Gamla gufan var ekki á hlustaði hann á Bach, Mozart, Beethoven – og auðvitað Ravel. Ég man enn þá þegar ég heyrði Boléro eftir Ravel í fyrsta sinn uppi á stofunni hans...
SkoðunMagnús Geir EyjólfssonTökum Mike Pence fagnandi17. ágúst 2019 Framganga Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna hefur vakið verðskuldaða eftirtekt á alþjóðavettvangi. Ísland var þar í fararbroddi þjóða sem gagnrýndu Sádi-Arabíu fyrir svívirðileg mannréttindabrot og vöktu sömuleiðis athygli á kerfisbundnum aftökum án dóms og laga á Filippseyjum. Allt saman til fyrirmyndar. Íslensk stjórnvöld vinna nú að undirbúningi fyrir heimsókn Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, til Íslands. Heimsókn þessi er gráupplagt tækifæri...
SkoðunDomus MentisGetur kynlíf hjálpað þér í vinnunni?14. ágúst 2019 Algengasta umkvörtunarefnið í kynlífsráðgjöf er að fólk gefur sér ekki tíma til kynlífs. Það eru önnur hlutverk sem trompa alltaf það að gefa sér tíma til að hlúa að sambandinu og að stunda kynlíf. Þegar nánar er athugað þá truflar vinnan oft kynlífið, en gæti það truflað vinnuna að stunda ekki kynlíf?
SkoðunDomus MentisÞað deyr engin úr ofsakvíða13. ágúst 2019 Höfundur / Þóra Sigfríð Einarsdóttir, sálfræðingur hjá Domus Mentis, Geðheilsustöð. Undanfarið höfum við fjallað um kvíða og kvíðaviðbrögð og höldum því áfram í dag. Nú fjöllum við um ofsakvíða, kvíðaröskun sem einkennist að endurteknum óvæntum kvíðaköstum sem standa yfirleitt yfir í nokkrar mínútur. Ofsakvíðaköst geta komið eins og þruma úr heiðskýru lofti, það er að segja án augljósra skýringa og...
SkoðunRoald EyvindssonHátíð okkar allra9. ágúst 2019 Leiðari úr 28. tölublaði Mannlífs Hinsegin dagar, sem hófust í vikunni, eru fyrir löngu búnir að festa sig í sessi sem ein fjölsóttustu hátíðarhöld á landinu. Það að um það bil einn þriðji hluti Íslendinga skuli taka þátt í Gleðigöngunni ár hvert er út af fyrir sig grámagnað og sýnir vel hvað staðan hefur breyst á þeim 20 árum frá...
SkoðunSteingerður SteinarsdóttirEngar afsakanir8. ágúst 2019 Leiðari úr 31. tölublaði Vikunna Hugurinn er öflugasta „líffæri“ mannsins og sannarlega margt til í því að hann haldi ávallt mest aftur af okkur þegar kemur að því að láta draumana rætast. Ásdís Ósk Valsdóttir fékk hugljómun undir fyrirlestri Davids Goggins árið 2017. Hann hafði spurt sig hvort ævisaga hans yrði áhugaverð og komist að þeirri niðurstöðu að svo væri...
SkoðunAðsend greinFatastærðir og grannar fyrirsætur7. ágúst 2019 Höfundur / Linda Björg Árnadóttir hönnuður og lektor við Listaháskóla Íslands Allir mannslíkamar eru einstakir og mismunandi og engar tvær manneskjur eru nákvæmlega eins. Þegar farið var að fjöldaframleiða tískufatnað var fundið upp stærðarkerfi með það að markmiði að selja tísku til fjöldans. Í dag rúmlega 100 árum eftir að farið var að fjöldaframleiða tískufatnað er ekki til neitt stærðarkerfi...
SkoðunJóhanna SveinsdóttirKondí bílinn!5. ágúst 2019 Síðast en ekki síst Ég man að opið á milli trjánna var rétt nógu stórt. Ég leit aftur fyrir mig og sá rústrauða Fordinn niðri á tjaldstæði og pabba stumra yfir gamla A-tjaldinu frá Tjaldborg. Ég hvarf í gegnum opið þar sem ævintýrin biðu í næstu laut. Ég lagðist í mosavaxinn skógarbotninn, angan af hálfvotu lyngi fyllti vitin og fuglarnir...
SkoðunSteingerður SteinarsdóttirÁ réttvísi eitthvað skylt við réttlæti?4. ágúst 2019 Leiðari 27. tbl. Mannlífs 2019 Gyðja réttlætisins er blind og heldur á vogarskálum til marks um að hún sé hlutlaus. Allir vita samt að vogarskálarnar eru skakkar, á þær hefur verið hlaðið lóðum gildismats samfélagsins. Algert hlutleysi er ekki og verður aldrei til. Hvergi er þetta jafnaugljóst og í kynferðisbrotamálum. Lengi trúðu menn því að konur og börn kölluðu yfir...
SkoðunAðsend skoðunSmurolía og majónes2. ágúst 2019 Skoðun eftir Elliða Vignisson Hægrimennska rúmar ekki rasisma (kynþáttahyggju). Stefna okkar hægrimanna getur aldrei af neinum sannindum verið orðuð við slíkt. Það samræmist ekki afstöðu okkar að sjá kynþátt sem einkennandi fyrir einstakling. Við, þvert á móti, furðum okkur á því að einhverjum detti í hug að einlæg trú okkar á einstaklinginn og frelsi hans, einstaklingshyggjan, gæti tengst fordæmingu á...
SkoðunAðsend greinEldhress þessi Evrópa31. júlí 2019 Höfundur / Henry Alexander, heimspekingur Ég dvaldi í Flatey í síðustu viku. Tók tvær bækur með mér sem nýverið hafa komið út í íslenskri þýðingu. Þetta voru bækurnar Dauði Evrópu – innflytjendur, sjálfsmynd, íslam eftir Douglas Murray og Glæpur við fæðingu eftir Trevor Noah. Við lesturinn kom í ljós að bækurnar áttu sameiginlegan þráð: kynþáttaandúð. Önnur lýsir því hvernig það...
SkoðunAðsend greinAfleiðingar spyrja ekki um ásetning30. júlí 2019 TW Trigger Warning/VVvarúð váhrif: lýsingar á kynferðisofbeldi og afleiðingum þess Höfundur / Helga Baldvins Bjargardóttir Ég á ótal minningar um fólk sem fer yfir mín kynferðislegu mörk en þrjú atvik standa þar upp úr og hafa haft hvað mest áhrif á líf mitt. Fyrst var það kynferðislegt ofbeldi sem ég varð fyrir af hálfu konu sem tengist mér fjölskylduböndum og...
SkoðunAðsend skoðunNeyslusamfélagið29. júlí 2019 Höfundur / Eva H. Baldursdóttir Samfélagið okkar er neyslusamfélag, staðalmynd nútíma vestræns samfélags. Mannskepnan er flókið dýr með góðar gáfur. Það er samt auðvelt að breyta okkur í sofandi vélmenni þegar kemur að hinum ýmsu innkaupum, hluti sem við teljum okkur „þurfa“. Á 21. öldinni hafa tæknibreytingar líkt og auðveld netverslun og stöðugar auglýsingar gert okkur það erfiðara fyrir að...
SkoðunDomus MentisEr gjá að myndast milli þín og unglingsins þíns?25. júlí 2019 Höfundur / Íris Eik Ólafsdóttir, réttarfélagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur hjá Domus Mentis, Geðheilsustöð. Foreldrar eru flestir hverjir góðir í því að taka tillit til þroska minni barna og meta hvað þau eru fær um að gera. Þegar kemur að unglingum er eðlilegt að gera meiri kröfur en það getur gleymst að unglingar eru ekki með sama þroska og fullorðið fólk. Það...