
Alma Möller heilbrigðisráðherra tók ekki þátt í páskaeggjaleit í ráðuneytinu samkvæmt svari þess við fyrirspurn Mannlífs.
Viðskiptablaðið hafði áður greint frá því að hún hafi gert það en miðillinn skrifaði það í kjölfar þess að ósætti kom upp varðandi að tilkynnt var um að starfsmenn Landspítalans myndu ekki fá páskaegg þetta árið.
„Þriðjudaginn 24. mars stóð starfsmannafélag heilbrigðisráðuneytisins fyrir páskaeggjaleit fyrir starfsmenn. Félagið hafði falið lítil súkkulaðiegg á stærð við konfektmola víðs vegar um vinnustaðinn og var kostnaður vegna leitarinnar alfarið greiddur af starfsmannafélaginu,“ segir í svari ráðuneytisins.
„Hvorki heilbrigðisráðuneytið né heilbrigðisráðherra höfðu aðkomu að því að skipuleggja leitina, þátttöku í henni eða þeim kostnaði sem af henni hlaust. Heilbrigðisráðherra var ekki staddur í húsnæði ráðuneytisins þegar leitin fór fram.“
Ráðuneytið hafði hins vegar gefið starfsmönnum þess páskaegg degi fyrr.
„Daginn áður höfðu 79 starfsmenn ráðuneytisins fengið páskaegg nr. 4 frá Nóa Síríus að gjöf frá ráðuneytinu. Kostnaðurinn vegna eggjanna nam 172.569 kr. eftir að verðtilboða hafði verið aflað og var gjöfin ekki tengd páskaeggjaleit starfsmannafélagsins á nokkurn hátt.“

Komment