1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

3
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

4
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

5
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

6
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

7
Minning

Megas er látinn

8
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

9
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

10
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Til baka

Engar sannanir í meintu kynferðisbrotamáli gegn leikskólabarni

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur í tvígang hætt rannsókn á meintu broti starfsmanns á leikskóla

Akureyri 2
AkureyriLögreglan hefur engar sannanir fundið í málinu
Mynd: Gerd Eichmann

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur í tvígang hætt rannsókn á meintu kynferðisbroti gegn leikskólabarni á Akureyri, þar sem ekkert kom fram sem studdi ásakanir í málinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu sem lögreglan birti á Facebook, í kjölfar umræðu um málið.

Málið var upphaflega tilkynnt til lögreglu í ágúst 2024 af hálfu barnaverndar, eftir að aðstandandi barns greindi frá því að ungur maður hefði sýnt barninu óviðeigandi hegðun. Samkvæmt lögreglu beindist rannsóknin einkum að grun um kynferðislega áreitni vegna meintra kossa.

Við rannsókn málsins komu þó ekki fram gögn sem studdu framburð aðstandanda og var rannsókn hætt í október sama ár. Sú ákvörðun var kærð til Ríkissaksóknara.

Á meðan kæran var til meðferðar bárust lögreglu nýjar upplýsingar frá barnavernd um að maðurinn hefði játað kynferðislega áreitni fyrir ættingja sínum. Í kjölfarið var rannsóknin tekin upp að nýju, en laut að sömu atriðum og áður.

Að sögn lögreglu komu heldur ekki fram ný gögn í þetta skiptið sem studdu ásakanirnar við þá rannsókn og var málinu því lokað á ný í desember 2024. Sú niðurstaða var aftur kærð til Ríkissaksóknara, sem staðfesti ákvörðun lögreglu í apríl 2025.

Barnið fékk réttargæslumann við rannsókn málsins og hefur nýr lögmaður nú tekið það að sér. Lögregla segir að foreldrar hafi verið hvattir til að koma fram með nýjar upplýsingar ef þær væru til staðar, en engar slíkar upplýsingar hafi borist.

Samkvæmt lögreglu liggur því ekki fyrir rökstuddur grunur um að maðurinn hafi gerst brotlegur gagnvart barninu. Embættið segist ekki ætla að tjá sig frekar um málið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu