1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

3
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

4
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

5
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

6
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

7
Minning

Megas er látinn

8
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

9
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

10
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Til baka

Drukkinn faðir dæmdur fyrir að ráðast á börn sín

Börnin reyndu að stía foreldrum sínum í sundur.

Borgarnes 2025 Wiki
Héraðsdómur Vesturlands er í BorgarnesiMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Wikipedia/Chensiyuan

Karlmaður hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir líkamsárás en málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Vesturlands.

Hann var ákærður fyrir brot í nánu sambandi og gegn barnaverndarlögum með því að hafa árið 2025 veist að syni sínum og tekið með báðum höndum um háls hans og höfuð og hrist hann til og með þessu ógnað lífi, heilsu eða velferð hans og með þessu jafnframt sýnt af sér ósiðlegt og ruddalegt athæfi gagnvart drengnum.

Faðirinn var einnig ákærður fyrir að hafa veist að dóttur sinni og tekið um hendur hennar, haldið þeim og kreist þær og með þessu ógnað lífi, heilsu eða velferð hennar og með þessu jafnframt sýnt af sér ósiðlegt og ruddalegt athæfi gagnvart stúlkunni.

Samkvæmt dómnum var maðurinn drukkinn þegar atvikið átti sér stað. Hann viðurkenndi að hafa farið yfir strikið, eins og það er orðað í dómnum, en var ósáttur við þá fullyrðingu að hann hafi hrist börnin. Það myndi sjást á börnunum ef hann myndi gera slíkt.

Hann segist hafa lent í útistöðum við þáverandi sambýliskonu sína og börnin reynt að stía þeim í sundur.

Samkvæmt dómum hefur hann áður verið dæmdur fyrir að brjóta gegn börnum sínum og sambýliskonu. Einnig hefur hann verið dæmdur fyrir vopnalagabrot.

„Brotin eru að mati dómsins alvarleg og ófyrirleitin gagnvart börnum ákærða inni á heimili þeirra sem á að vera þeim griðastaður. Að auki verður að horfa til þess að brotin eru framin, og skilorð þar með rofið, einungis rétt um þremur mánuðum eftir að fyrri dómur féll.“

Pabbinn var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi en sá dómur er skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá þarf hann að greiða syni sínum 400 þúsund krónur auk vaxta og dóttur sinni 300 þúsund krónur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu