Stúdentahreyfingin Röskva hélt mótmæli í gær fyrir utan háskólaráðsfund sem fór fram í aðalbyggingu Háskóla Íslands.
Á fundi háskólaráðs var ákvörðun tekin um að hækka skrásetningargjald skólans. Gjaldið hefur verið 75.000 krónur en verður hækkað upp í 100.000 krónur. Þessi ákvörðun háskólaráðs er tekin í kjölfar lagabreytingar sem samþykkt var á Alþingi fyrir jól um að heimila opinberum háskólum að rukka skrásetningargjöld fyrir allt að 100.000 krónum.
Mannlíf ræddi við Ármann Leifsson, forseta Röskvu, um þessa hækkun.
Myndir þú segja að þessi hækkun hjá Háskóla Íslands sé svik við nemendur?
„Ég myndi kannski ekki nota orðið svik nema þegar um ræðir áralanga stefnu stjórnvalda um að vanfjármagna Háskóla Íslands. Það eru svik við stúdenta, háskólamenntun og framtíð Íslands,“ sagði Ármann við Mannlíf um málið.
„Þetta sýnir bersýnilega að Háskóli Íslands er í erfiðri stöðu fjárhagslega. Að seilast í vasa stúdenta er þó ekki lausnin. Ég myndi vilja sjá rektor og aðra stjórnendur skólans vera öflugri talsmenn þess að ríkið fjármagni opinbera háskóla almennilega.“


Komment