1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

4
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

5
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

6
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

7
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

8
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

Til baka

Einn af eigendum Íslands fordæmdur fyrir orð sín um innflytjendur

Milljarðamæringurinn Jim Ratcliffe er krafinn um afsökunarbeiðni vegna ummæla sem ala á innflytjendahatri.

Jim Ratcliffe
Jim RatcliffeRatcliffe á um 1400 til 1500 ferkílómetra af landi á Norðausturlandi
Mynd: RUDY CAREZZEVOLI / GETTY IMAGES VIA AFP

Andy Burnham, borgarstjóri Stór-Manchester-svæðisins, hefur gagnrýnt harðlega ummæli Jim Ratcliffe, hluthafa í Manchester United, þar sem hann hélt því fram að Bretland hefði verið „numið af innflytjendum“. Burnham segir ummælin ganga gegn grunngildum Manchester og lýsir þeim sem „ónákvæmum, móðgandi og egnandi“.

Ratcliffe lét ummælin falla í viðtali við Sky News á miðvikudag. Þar sagði hann að Bretland gæti ekki rekið hagkerfi með „níu milljónir manna á bótum og gríðarlegan fjölda innflytjenda sem streymir inn“. Ratcliffe býr sjálfur í Mónakó, sem er skattfrjálst ríki, og er stofnandi INEOS. Samkvæmt Sunday Times er hann sjöundi ríkasti maður Bretlands, með um 17 milljarða punda eignir. Þá á Ratcliffe um 1,4% af flatarmáli Íslands í gegnum gríðarleg landakaup á Norðausturlandi.

Í yfirlýsingu sinni sagði Burnham meðal annars:

„Þessi ummæli ganga gegn öllu því sem Manchester hefur staðið fyrir í gegnum tíðina: borg þar sem fólk af öllum kynþáttum, trúarbrögðum, eða engum, hefur unnið saman í aldaraðir að uppbyggingu borgarinnar og stofnana hennar, þar á meðal Manchester United. Að kalla eftir takmörkunum á innflytjendamálum er eitt; að lýsa fólki sem kemur hingað sem fjandsamlegu innrásarliði er eitthvað allt annað. Þetta er ónákvæmt, móðgandi, egnandi og ætti að draga til baka.“

Burnham minnti jafnframt á að innflytjendur væru ómissandi hluti af samfélaginu, bæði í knattspyrnu og í opinberri þjónustu.

„Knattspyrnumenn sem hafa komið hvaðanæva að úr heiminum til að spila í Stór-Manchester hafa auðgað líf borgarsvæðisins, líkt og fjöldi fólks sem starfar í NHS og öðrum lykilþjónustum. Við erum þekkt fyrir hlýjar móttökur og metum framlag þeirra,“ sagði hann.

Hann bætti við að gagnrýni ætti fremur að beinast að öðrum hópi:

„Ef einhver gagnrýni á við, ætti hún að beinast að þeim sem hafa lagt lítið af mörkum til lífsins hér og í staðinn varið árum í að soga auð úr einni stoltustu stofnun okkar.“

Ratcliffe sagði í viðtalinu við Sky News:

„Þú getur ekki haft hagkerfi þar sem níu milljónir eru á bótum og gríðarlegur fjöldi innflytjenda streymir inn. Bretland hefur verið numið. Þetta kostar of mikla peninga. Bretland hefur í raun verið numið af innflytjendum, er það ekki? Íbúafjöldinn var 58 milljónir árið 2020, nú er hann 70 milljónir.“

Opinber tölfræði styður þó ekki þessa fullyrðingu. Íbúafjöldi Bretlands var um 67,1 milljón árið 2020 og 69,3 milljónir árið 2024. Landið var síðast með um 58 milljónir íbúa árið 2000.

Dómsmálaráðherra Bretlands, Jake Richards, gagnrýndi orðalag Ratcliffe og sagði:

„Hann hefur rangt fyrir sér í staðreyndum og það er dálítið hræsnaralegt að maður sem flutti til Mónakó til að spara sér um fjóra milljarða punda í sköttum sé nú að haldar fyrirlestur fyrir okkur um innflytjendamál.“

Forsætisráðherrann Keir Starmer tók í sama streng og skrifaði á samfélagsmiðlum:

„Móðgandi og rangt. Bretland er stolt, umburðarlynt og fjölbreytt land. Jim Ratcliffe ætti að biðjast afsökunar.“

Samtökin Kick It Out, sem berjast gegn mismunun í knattspyrnu, kölluðu ummælin „svívirðileg“ og sögðu slíkt orðalag „enga framtíð eiga í enskri knattspyrnu“.

Ratcliffe keypti minnihluta í Manchester United seint á árinu 2023 og hefur INEOS síðan tekið yfir rekstur knattspyrnumála félagsins. Ákvarðanir hans hafa vakið deilur meðal stuðningsmanna, einkum vegna miðaverðs og framboðs. Fyrir leik Manchester United gegn Fulham fóru fram mótmæli gegn eigendum félagsins, í fyrsta sinn einnig beint gegn Ratcliffe sjálfum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Þær höfðu komið til Brighton frá London seint kvöldið áður
Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Þær höfðu komið til Brighton frá London seint kvöldið áður
Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Loka auglýsingu