1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

3
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

4
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

5
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

6
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

7
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

8
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

9
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

10
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Til baka

Fundu dauða ketti á meðan eigandi þeirra var erlendis

Aðrir lifandi kettir voru teknir af eigandanum

Köttur í miðbæ
Köttur í miðbæ ReykjavíkurMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Matvælastofnun hefur á undanförnum misserum gripið til fjölbreyttra aðgerða vegna brota á lögum um velferð dýra. Málin spanna allt frá vörslusviptingum gæludýra til dagsekta og stjórnvaldssekta á búrekstri og sláturhúsum.

Kettir og hundar fjarlægðir af heimilum

Í nokkrum tilvikum var ákveðið að svipta eigendur vörslu gæludýra vegna alvarlegrar vanrækslu. Í einu máli var köttur fjarlægður af heimili eftir að ill meðferð hafði stefnt lífi hans í hættu. Í öðru tilviki samþykkti umráðamaður kattar að dýrið yrði fjarlægt varanlega vegna slæms aðbúnaðar.

Einnig voru umráðamenn hunds sviptir vörslu hans eftir að lögregla heimsótti heimili þeirra. Þar kom í ljós heilsuspillandi íbúð, slæmur aðbúnaður og ófullnægjandi umönnun hundsins.

Í öðru alvarlegu máli, þar sem eigandi hafði farið í margra vikna ferðalag til útlanda og falið öðrum að annast marga ketti, leiddi eftirlit til þess að nokkrir kettir fundust dauðir. Aðrir kettir voru fjarlægðir af heimilinu í kjölfarið.

Dagsektir vegna vanrækslu í búfjárhaldi

Nokkrir nautgripabændur fengu áminningar og dagsektir vegna frávika í dýrahaldi. Í sumum tilfellum báru dagsektir árangur. Einn bóndi fékk dagsektir upp á 10.000 krónur á dag vegna ófullnægjandi bása og hreinlætis, en bætti úr áður en til innheimtu kom og voru sektir því felldar niður.

Í öðru máli voru dagsektir upp á 7.500 krónur á dag lagðar á bónda vegna skorts á klaufhirðu og ófullnægjandi brynningar og rýmis fyrir gripi. Þá voru einnig lagðar dagsektir upp á 10.000 krónur á dag vegna annarra frávika í búrekstri.

Þegar dagsektir skiluðu ekki árangri í einu máli var gripið til frekari aðgerða og hluti nautgripahjarðar fjarlægður. Öll kvendýr og ungviði voru tekin úr umsjón bóndans til að tryggja velferð gripanna.

Stjórnvaldssektir og brot í sláturhúsi

Í einu tilviki var nautgripabóndi sektaður um 288.000 krónur fyrir að binda naut á bása, sem er bannað samkvæmt reglugerð nema við sérstakar aðstæður, svo sem við meðhöndlun eða þegar kvígur eru nálægt burði.

Þá var fuglasláturhús sektað um 144.500 krónur vegna brota á velferð fugla við aflífun. Óvænt rafmagnsleysi varð við slátrun og var ekki brugðist rétt við því, sem leiddi til ófullnægjandi meðferðar fugla á sláturlínu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu