1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

3
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

4
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

5
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

6
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

7
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

8
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

9
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

10
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Til baka

„Mér líkaði einfaldlega aldrei við Jeffrey“

Dorrit Moussaieff segist hafa þróað með sér innsæi gagnvart fólki frá unga aldri

dorrit-epstein-mnl2

Skartgripadrottningin og fyrrverandi forsetafrúin Dorrit Moussaieff, segist hafa í sér hálfpartinn genatískt innsæi og því hafi hún skynjað fljótt að Jeffrey Epstein væri maður sem hún vildi ekkert hafa með.

Mannlíf ræddi við Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, um tengsl hennar við Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell, í ljósi opinberrar umræðu um málið bæði hérlendis og erlendis.

„Halló og bless!“

Fram hefur komið að símanúmer Dorritar hafi verið skráð í tengiliðalista Epsteins. Spurð hvort hún hafi átt mörg símtöl við hann segir hún:

„Einu samtölin sem ég hef átt við Jeffrey Epstein voru varðandi lyftu í byggingunni okkar sem virkaði ekki, þar sem hann var svo vingjarnlegur að bera upp farangurinn fyrir mig.“

Aðspurð hvenær hún hafi síðast talað við Epstein segir Dorrit:

„Síðasta skiptið sem ég talaði við Epstein var fyrir 25 árum.“

Um hvað samtalið hafi snúist svarar hún einfaldlega:

„Halló og bless! Ég gekk út á stundinni sem hann gekk inn.“

Dorrit segir jafnframt að hún hafi síðast hitt Epstein fyrir 25 árum og að samskiptin hafi þá einnig verið takmörkuð:

„Halló og bless.“

Hún segir aldrei hafa rætt málefni íslenska ríkisins við Epstein og kveðst hafa forðast samskipti við hann eins og hún gat.

„Nei, ég reyndi af fremsta megni að forðast að eiga samtöl við hann.“

Spurð hvort hún hafi nokkurn tímann hitt Epstein ásamt eiginmanni sínum, fyrrverandi forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni, segir hún:

„Já, við hittumst við sama tækifæri fyrir 25 árum. Ég krafðist þess að við yfirgæfum bæði herbergið þegar í stað.“

Innrætt innsæi

Mannlíf spurði Dorrit hvers vegna hún forðaðist Epstein en hún segist hafa treyst innsæi sínu.

„Frá unga aldri vann ég í búð föður míns í Jerúsalem. Ég byrjaði að vinna þar 10 ára gömul. Þetta var löngu fyrir tíma kreditkorta. Alls konar fólk kom inn. Samningar voru gerðir með handabandi. Maður þróaði með sér innsæi, tilfinningu fyrir því hvers konar persónu maður var að eiga við, hvort þeir eru traustsins verðir.“

Hún segir þessa tilfinningu hafa fylgt sér alla tíð.

„Þetta hefur verið innrætt í mig og fjölskyldu mína í kynslóðir. Þetta er næstum orðið hluti af genum okkar.“

Dorrit segir ólæsan föður sinn hafa hvatt hana til þess að þróa innsæið.

„Faðir minn, sem var ólæs, hafði frábært innsæi, hann hvatti mig til að þróa það. Það er eins og loftnet sem varar mann við. Svolítið eins og tilfinningin sem Samson [íslensk-þýskur fjárhundur Ólafs og Dorritar] fær þegar hann hittir einhvern sem honum líkar ekki við.“

Hún segir í samtali við Mannlíf að hana hafi aldrei líkað við Epstein.

„Mér líkaði einfaldlega aldrei við Jeffrey. Og vildi ekki vera í félagsskap hans. Auðvitað gat ég ekki forðast að rekast á hann á leið inn og út úr byggingunni okkar.“

Árið 2019 svaraði hún í samtali við DV að hún hefði ekki tekið eftir neinu furðulegu varðandi Epstein en Mannlíf spyr Dorrit hvers vegna hún segist nú hafa forðast hann.

„Það var ekkert skrítið við hann. Mér líkaði bara ekki við hann, svolítið slepjulegur,“ svarar Dorrit.

Um samband sitt við Ghislaine Maxwell segir Dorrit að hún hafi vitað, líkt og aðrir í Bretlandi, að Maxwell væri í sambandi við Epstein, en ekki haft vitneskju um eðli þess.

„Ég vissi, eins og allir aðrir sem bjuggu í Bretlandi, að Ghislaine var í sambandi með Jeffrey. Hvers konar samband það var hafði ég ekki hugmynd um.“

Hún kveðst ekki hafa átt náið samband við Maxwell.

„Ég held ég hafi aldrei séð þau saman. Ég átti ekki þannig vinskap við hana.“

Í símtali við blaðamann ítrekar Dorrit að hún hafi „alls ekki“ varað Maxwell við Epstein þar sem hún „átti ekki þannig samband við hana“.

Innsæið virðist hafa brugðist Dorrit þegar kom að Maxwell, sem dæmd var í 20 ára fangelsi fyrir hennar þátt í glæpum Epsteins. Aðspurð hvort það hafi komið henni á óvart að Maxwell hafi verið dæmd fyrir mansal og samsæri um að útvega Epstein stúlkur, allt niður í 14 ára aldur, segir Dorrit:

„Já, ég var afar hissa og í áfalli. Ég skil það enn ekki.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu