1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

4
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

5
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

6
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

7
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

8
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

Til baka

Sextíu og fimm ára og flott í bikiní

Jennifer Grey, sem brátt snýr aftur sem Baby í Dirty Dancing 2, spókaði sig í svörtu bíkiní á dögunum.

Jennifer Grey og vinkona
Tracy Polland og Jennifer GreyVinkonurnar voru alsælar með vinkonuferðina
Mynd: Instagram

Hin 65 ára Dirty Dancing leikkona, Jennifer Grey spókaði sig í bíkiníi á ströndinni.

Dirty Dancing var einn mesti óvænti kvikmyndasmellur níunda áratugarins og gerðu aðalleikara myndarinnar, Patrick Swayze og Jennifer Grey, heimsþekkta á einni nóttu. Á meðan ferill Swayze blómstraði áfram dró Grey sig hins vegar í hlé frá sviðsljósinu. Þrátt fyrir það er myndin enn í dag ein vinsælasta og eftirminnilegasta kvikmynd Hollywood frá níunda áratugnum.

Slysið sem breytti öllu

Grey hvarf að mestu úr kastljósinu á árunum eftir útkomu myndarinnar og skýrði ekki frá ástæðum þess fyrr en mun síðar. Meira en þrjátíu árum eftir frumsýningu Dirty Dancing greindi hún frá hörmulegu bílslysi sem breytti lífi hennar til frambúðar. Hún tók sér þann tíma sem hún þurfti til að ná bata og finna aftur ástríðuna fyrir leiklistinni, áður en hún sneri aftur til starfa.

Eftir langt hlé hóf Grey feril sinn á ný og vakti mikla athygli þegar hún sigraði í sjónvarpsþættinum Dancing With the Stars. Fyrir marga aðdáendur verður hún þó alltaf „Baby“ – unga konan sem fann styrk sinn eitt sumar á dvalarstað í Catskill-fjöllunum. Nærri fjórum áratugum síðar fylgir hlutverkið henni enn, á jákvæðan hátt.

Endurkoman

Í janúar 2026 staðfesti Grey að hún muni snúa aftur í Dirty Dancing 2, framhald sem lengi hefur verið orðrómur um og beðið eftir.

„Hlutverk Baby hefur haft mjög djúpan og merkingarbæran stað í hjarta mínu, rétt eins og hjá svo mörgum aðdáendum í gegnum árin,“ sagði hún í yfirlýsingu og bætti við: „Ég hef lengi velt því fyrir mér hvar Baby væri stödd mörgum árum síðar og hvernig líf hennar hefði þróast … og ég er spennt að segja að biðin virðist senn vera á enda.“

Baby í bikiní

Þótt Grey verði að eilífu tengd Kellerman’s og þessu ógleymanlega sumri í Dirty Dancing virðist hún í dag finna sig fullkomlega til síns heima við sjóinn. Hin 65 ára leikkona deildi nýverið myndum frá langþráðri vinkonuferð með bestu vinkonu sinni, leikkonunni Tracy Pollan. Myndirnar, sem hún birti á Instagram, sýna afslappaða gleði sem aðeins áratugalöng vinátta getur skapað, eins og það er orðað í erlendum slúðurmiðlum.

Jennifer Grey
Jennifer á ströndinniEnginn setur Baby út í horn
Mynd: Instagram

Myndaröðin hófst á Grey á kyrrlátum strandspotta í stílhreinu svörtu bikiní, með krullað hár í vindinum og stór sólgleraugu. Á annarri mynd stendur hún í sjónum í svörtum sundbol, þar sem öldurnar leika mjúklega um fætur hennar. Þá er ein myndin af þeim vinkonum saman.

Jennifer Grey
Jennifer GreyLeikkonan og hafið
Mynd: Instagram

Grey skrifaði við færsluna:

„Löngu tímabær vinkonuferð @tracy.pollan 🤍 flissuðum eins og við værum aftur í menntaskóla.“

Pollan tók í sama streng og skrifaði á sinni síðu:

„Besti tíminn með bestu vinkonu minni @jennifergrey.“

Þær hafa verið vinkonur í meira en 50 ár og kynntust fyrst sem stúlkur í The Dalton School í New York. Vinátta sem hófst í bernsku hefur fylgt þeim í gegnum hjónabönd, starfsferla, móðurhlutverkið og ótal tímamót.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Þær höfðu komið til Brighton frá London seint kvöldið áður
Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Þær höfðu komið til Brighton frá London seint kvöldið áður
Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Loka auglýsingu