1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

3
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

4
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

5
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

6
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

7
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

8
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

9
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

10
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Til baka

Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust vegna framkvæmda

Nettófjölgun plássa á árinu verður því 119

Ráðhús Reykjavíkur
Ráðhús Reykjavíkur.Talsverð fjölgun verður á leikskólaplássi á árinu
Mynd: Víkingur

Ekki verður innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík á þessu ári vegna framkvæmda og viðhalds, samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Um er að ræða leikskólana Hagaborg, Sæborg, Borg og Vinagerði. Foreldrar eru hvattir til að yfirfara og uppfæra leikskólaumsóknir sínar fyrir 2. mars 2026.

Úthlutun leikskólaplássa fyrir haustið 2026 hefst 2. mars og fer fram í kennitöluröð, þar sem elstu börnin fá boð fyrst í þá skóla sem valdir voru í umsókn. Samtals detta 169 leikskólapláss tímabundið út vegna framkvæmda, en á móti er gert ráð fyrir að 277 ný pláss bætist við á árinu. Nettófjölgun plássa á árinu verður því 119.

Af nýju plássunum eru 25 þegar komin í Klettaborg. Þá er gert ráð fyrir nýjum eða endurnýjuðum plássum í Árborg, Brákarborg, Hulduheimum og Seljaborg, auk nýs leikskóla við Rafstöðvaveg. Framkvæmdir eru mislangt komnar, en áætlað er að starfsemi geti hafist í nýjum leikskóla við Rafstöðvaveg í lok árs 2026.

Fjölgun leikskólaplássa fyrirhuguð 2027

Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir verulegri fjölgun leikskólaplássa árið 2027. Um mitt ár 2027 er áætlað að 372 ný pláss verði komin til sögunnar með nýjum leikskóla á Fossvogsbletti og viðbótarhúsum við Vesturborg, Grandaborg, Jörfa, Maríuborg og Hólaborg.

Bent er á að innritun í ný pláss fari fram í áföngum þar sem tíma tekur að manna störf og koma starfsemi í fullan gang.

Hagaborg flytur í Grandaborg

Ákveðið hefur verið að flytja starfsemi Hagaborgar í nýuppgert húsnæði Grandaborgar við Boðagranda í lok febrúar. Með flutningnum verður starfsemi Hagaborgar sameinuð undir eitt þak. Leikskólanum Hagaborg verður lokað tímabundið frá 1. september vegna umfangsmikilla viðhaldsframkvæmda og verður því ekki innritað þar fyrir næsta skólaár. Öll börn með vistun í Hagaborg færast sjálfkrafa yfir í Grandaborg.

Sæborg, Borg og Vinagerði

Í Sæborg þarf að fækka plássum á meðan stækkun stendur yfir og verður því ekki innritað þar í haust. Í Borg verður heldur ekki innritað vegna flutnings starfsemi og viðhaldsframkvæmda. Leikskólinn Vinagerði hefur verið lokaður vegna ástands húsnæðis og verður ekki innritað þar.

Fram kemur í tilkynningu frá borginni að foreldrar barna sem hafa valið Hagaborg, Sæborg eða Borg í umsóknum sínum, eða óskað eftir flutningi þangað, þurfa að breyta umsóknum sínum fyrir 2. mars.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu