
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, hefur sagt af sér ráðherraembætti eftir að upp komst að hún eignaðist barn með ungum pilti þegar hún leiddi unglingastarf í trúfélaginu Trú og líf.
Sambandið átti sér stað fyrir 35 árum þegar Ásthildur var 22 ára gömul en pilturinn 15 ára. Hann var 16 ára þegar hún eignaðist barnið og var viðstaddur fæðinguna, en upplifði síðar tálmun þrátt fyrir að vera rukkaður um meðlag.
„Það er út af því að fyrir núna um þrjátíu og sex árum var ég 22 ára gömul og var í sambandi við mann sem var yngri en ég, 16 ára,“ segir Ásthildur Lóa í viðtali við Vísi.is. „Það voru ýmsar aðstæður þar í gangi sem ég get ekki farið út í hér. En fyrst það er verið að draga þetta fram núna þá ætla ég ekki að láta þetta skyggja á störf ríkisstjórnarinnar og öll þau góðu málefni sem þarf að vinna í menntamálaráðuneytinu.“
Einstaklingar teljast börn fram að 18 ára aldri. Maðurinn, Eiríkur Ásmundsson, kveðst ekki hafa upplifað sig sem fórnarlamb. Ójafnvægi var hins vegar á milli þeirra þar sem Eiríkur leitaði til trúfélagsins vegna vandræða á heimili sínu. Eins og segir í lýsingu á vef Mennta- og barnamálaráðuneytisins er „hlutverk mennta- og barnamálaráðuneytisins að tryggja að menntun, aðbúnaður og réttindi barna á Íslandi séu ávallt í fyrirrúmi“.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var upplýst um málið fyrir um viku síðan. Í kjölfarið bæði hringdi Ásthildur Lóa í tilkynnandann, aðstandanda barnsföðurins, og mætti á heimili viðkomandi.
Fram kemur í frétt RÚV að Ásthildur Lóa hafni ásökun um tálmun.
Ásthildur Lóa er aðeins tólfti ráðherra til að segja af sér embætti í sögu Íslands. Síðast sagði Bjarni Benediktsson af sér embætti fjármálaráðherra vegna vanhæfis við sölu á Íslandsbanka, en sneri aftur sem utanríkisráðherra um leið. Þar áður sagði Sigríður Á. Andersen af sér embætti dómsmálaráðherra eftir lögbrot við skipan dómara í Landsrétt.
Komment