
Viðreisn er vægast sagt í góðum málum ef marka má skoðanakannanir sem gerðar hafa verið fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Mun flokkurinn sennilega fá þrjá borgarfulltrúa og jafnvel fjóra ef allt gengur eftir.
Sá árangur hefur svo sannarlega ekki farið fram hjá Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og félögum hennar. Oddvitinn, sem er óvinsæll hjá mörgum Sjálfstæðismönnum, er sagður ólmur vilja komast í meirihlutasamstarf og er tilbúinn til að gefa eftir borgarstjórastólinn til að ná því í gegn.
Yrði þá Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, borgarstjóri í meirihlutasamstarfi þeirra flokka að viðbættum Miðflokknum, sem gæti mögulega náð þremur borgarfulltrúum. Munurinn er hins vegar sá að Miðflokkurinn en á fáa möguleika á meirihlutasamstarfi annað en Viðreisn ...

Komment