1
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

2
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

3
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

4
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

5
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

6
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

7
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

8
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

9
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

10
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Til baka

Jens iðar í skinni

Alþingi óundirbúnar fyrirspurnir - Jens Garðar
Jens Garðar Helgason
Mynd: Víkingur

Það sverfur að Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins, í þeim fylgisraunum sem blasa við. Guðrún hafði yfir sér afar góða áru góðmennsku og hlýju og þótti framan af vera yfirveguð í framkomu og tilsvörum. Draumurinn um aukið fylgi með nýjum formanni brást og liðhlaupar flykkjast yfir í Viðreisn og Miðflokkinn.

Hver könnunin af annarri leiðir í ljós hrun Sjálfstæðisflokksins. DV birti um helgina könnun Maskínu sem sýnir stórtap flokksins í Hafnarfirði þar sem Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn með 24,5 prósenta fylgi. Þetta væri þó tap frá síðustu kosningum þegar flokkurinn hlaut 29 prósenta fylgi. 

Tap Samfylkingar er þó grín miðað við tap Sjálfstæðisflokksins sem mælist með 21,4 prósenta fylgi í Hafnarfirði en fékk 30,7 prósenta fylgi í kosningum. Könnun Maskínu um fylgi flokksins í Reykjavík felur einnig í sér ótíðindi þar sem 20 prósenta múrinn er í hættu þykir vera vísbending um hátt fall í vor. 

Guðrún þykir bera þess skýr merki að örvænting stjórni orðum hennar í auknum mæli. Eftir því var tekið að þegar falsfrétt Morgunblaðsins um Hamasliða á Höfðatorgi birtist þá stökk Guðrún á vagninn og lét eins og fréttin væri sönn. Innan Sjálfstæðisflokksins er vaxandi óþol vegna formannsins. Hermt er að hluti þingflokks Guðrúnar tali um það í bakherbergjum að tími hennar sé liðinn.

Varaformaðurinn, Jens Garðar Helgason, er sagður iða í skinninu að taka við af henni. Einn höfuðfjandi Guðrúnar er Jón Gunnarsson alþingismaður sem telur tíma formannsins vera að baki. Einhverjir innmúraðir Sjálfstæðismenn vilja fá hann til frekari ábyrgðar í flokknum. Það hlakkar í andstæðingum hins forna flokks sem virðist vera í frjálsu falli ...

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt
Innlent

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“
Heimur

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan
Heimur

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“
Pólitík

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn

Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Loka auglýsingu