
Lögreglumenn við störfMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur
Birgir Magnús Sveinsson hefur verið dæmdur í fangelsi af Héraðsdómi Suðurlands.
Hann var ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa miðvikudaginn 20. ágúst 2025 bæði innandyra og fyrir utan í Vestmannaeyjum, veist með ofbeldi að lögreglumanni sem var þar við skyldustörf, en ákærði sló lögreglumanninn fyrirvaralaust í bringuna í tvö skipti.
Birgir Magnús mætti ekki í dómsal og var dæmdur sekur. Sakarferill hafði ekki þýðingu við úrlausn þessa máls samkvæmt dómnum.
Hann var dæmdur í 30 daga fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…