
Eins og fjallað hefur verið um í fréttum hefur verið nóg að gera hjá björgunarsveitum á landinu á undanförnum dögum og hefur veðrið leikið lykilhlutverk í þeim efnum.
Ein þeirra sem eru sérstaklega þakklát er Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, en hún hélt fyrr í dag ræðu á Alþingi þar sem hún þakkaði sérstaklega björgunarsveitinni Kofra fyrir að bjarga sér úr bobba.
„Virðulegi forseti. Eins og svo margir hér á undan langar mig til að tala aðeins um kjördæmavikuna. Við fórum víða í þessari viku. Þar á meðal fórum við vestur á firði þar sem vikan varð örlítið ævintýralegri en við ætluðum þar sem við festumst í Djúpinu á leið inn á Ísafjörð og þurftum að kalla til Björgunarsveitina Kofra. Við fengum þar afar óvænta en dýrmæta lexíu um það hvernig björgunarsveitirnar vinna og hversu mikilvægar þær eru fyrir okkur og þetta mikilvæga starf sem þau vinna oft við mjög krefjandi aðstæður. Ég vil því nota tækifærið og þakka Björgunarsveitinni Kofra fyrir dásamlega björgun og frábæra þjónustu og hvet alla til að styðja við þeirra starf,“ sagði Sigurþóra í pontu.

Komment