
Sjálfstæðisflokkurinn er í nauðvörn í Reykjavík. Eftir erfiða fæðingu er loksins að fæðast listi undir stjórn hinnar umdeildu Hildar Björnsdóttur. Stóra fréttin er sú að borgarfulltrúarnir Björn Gíslason og Friðjón Friðjónsson eru komnir út í ystu myrkur og eru settir í 10. og 11. sæti listans ef marka má netmiðilinn Vísi. Friðjón tekur örlögum sínum af mikilli karlmennsku og segist vera í baráttusæti. Þetta þykir vera mikil kokhreysti í því ljósi að flokkurinn er aðeins með sex borgarfulltrúa og nær að tala um brandarasæti Friðjóns.
Kjartani Magnússyni borgarfulltrúa verður alveg fleygt út. Það kallar yfir Hildi og félaga reiði Moggans þar sem Andrés Magnússon stýrir stjórnmálaumfjöllun blaðsins og hefur gjarnan fjallað af þunga um bróður sinn og sigra hans. En flokkurinn í Reykjavík hefur þó eignast öfluga fjölmiðla í baklandi sínu. Athygli vekur að Vísir hefur leitt umræðu um málefni flokksins í borginni og skúbbað ýmsu jákvæðu fyrir Hildi. Þar ber til þess að líta að Jón Skaftason, eiginmaður Hildar, var stjórnarformaður Sýnar þar til síðasta vor og leiðir einn stærsta hluthafahópinn. Hann er því innanbúðarmaður eða hefur þau tengsl sem þarf til að bera á milli boð ...
Komment