1
Innlent

Börn Dönu Jóhannsdóttur stíga fram eftir ákæru á hendur Skúla

2
Innlent

Hekla innkallar vinsælan rafbíl vegna eldhættu

3
Innlent

Karlmaður sagður hafa notað HHÍ til að þvætta vændispeninga

4
Fólk

Sirrý gerð að deildarstjóra

5
Innlent

Aðstandandi meints fórnarlambs Skúla Tómasar tjáir sig

6
Minning

Kjartan Guð­munds­son er fallinn frá

7
Innlent

Róbert hótaði að drepa lögreglumenn

8
Innlent

Ver aðgerðir vegna Gaza og gagnrýnir íslenska umræðu

9
Minning

Elías Héðinsson er fallinn frá

10
Heimur

Eurovision færir sig til Asíu

Til baka

„Ég fæ einstaka sinnum einhver skítaskilaboð“

Rakel María Hjaltadóttir gerir sitt besta til að vera einlæg

Rakel María Hjaltadóttir
Rakel María HjaltadóttirHún elskar svo sannarlega að ferðast
Mynd: Instagram/Rakel María Hjaltadóttir

Rakel María Hjaltadóttir, hlaupari og markaðsstjóri, segist vera þakklát á hverjum degi fyrir að fá að starfa við að skapa og deila efni á samfélagsmiðlum. Hún er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar og er nýlega snúin heim úr ferð til Afríku sem hún segir hafa haft djúpstæð áhrif á sig sem manneskju.

Rakel hvetur fólk til að stíga út fyrir þægindarammann, taka áhættu og læra að segja já við nýjum tækifærum.

„Ég trúi því að maður eigi alltaf að segja já við öllum tækifærum. Líka því sem hræðir mann. Það var aldrei planið hjá mér að verða áhrifavaldur eða vinna við að setja efni á samfélagsmiðla. Ég held að ég hafi verið með 3 þúsund fylgjendur þegar ég fékk boð frá Mjólkursamsölunni um að fara í samstarf varðandi Hleðslu þegar ég var að keppa sem mest í hlaupunum. Svo leiðir eitt af öðru og boltinn fór að rúlla. Þegar ég var farin að fá borgað fyrir þetta og sá að það gæti verið gott tækifæri í þessu tók ég bara ákvörðun um að gera þetta markvisst og almennilega. Sleppti röddinni í hausnum á mér sem var að ofhugsa og ákvað að þeir sem hefðu ekki áhuga gætu bara „unfollowað“ mig. Strax eftir þetta fór þetta á flug og ég fór að fá fleiri og fleiri tækifæri. Svo núna er ég með meira en 20 þúsund Íslendinga að fylgja mér og ég er svo innilega þakklát fyrir þetta samfélag sem ég er með þarna. Ég fæ daglega falleg skilaboð frá fólkinu sem fylgir mér og næ stundum ekki utan um það að þetta sé atvinnan mín í dag. Mér finnst það algjör forréttindi að fá borgað fyrir að búa til efni á samfélagsmiðlum. Auðvitað getur þetta verið mikil vinna og þegar maður er að vinna með fyrirtækjum þarf ég að setja ákveðið magn af efni inn. Af því að ég vil ekki að miðillinn minn sé bara ein stór auglýsing, þýðir það að ég set þá inn þeim mun meira efni sem er ekki hluti af neinu samstarfi. Ég geri mitt besta til þess að vera einlæg og koma til dyranna eins og ég er klædd og það skilar sér vonandi,“ segir Rakel, sem segir hluta af því að vinna við að setja efni á samfélagsmiðla.

Ekki hægt að gera öllum til geðs

Ég fæ einstaka sinnum einhver skítaskilaboð, en maður verður bara að ýta því frá sér og ekki láta það hafa áhrif á sig.“

„Ég hef til dæmis fengið skilaboð um að ég sé of jákvæð, sem segir ekkert um mig. Maður getur aldrei gert öllum til geðs og það er best að átta sig sem fyrst á því. Það er skrýtið fyrst að sjá neikvæð ummæli um sjálfa sig og hefur auðvitað áhrif, en svo lærir maður að hrista það af sér. Ég man eftir að hafa séð comment eins og „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn,“ og að ég væri heimsk og fleira í þeim dúr. Ef við veltum því aðeins fyrir okkur er áhugavert að fullorðið fólk sé að láta svona hluti út úr sér um fólk sem það þekkir ekki neitt. Það segir sig sjálft að það segir meira um það heldur en mig. Ég skil eiginlega ekki af hverju fólk gerir þetta og hvort það spyrji sig aldrei hvar það er statt í lífinu. Þetta segir auðvitað bara allt um þann sem er að skrifa þetta og hvernig viðkomandi líður. Ef við hugsum það hvernig auglýsing það er fyrir sjálfan þig að skilja eftir þig svona fótspor á netinu er það frekar augljóst. Það nenna fæstir að umgangast fólk sem er uppfullt af neikvæðni og biturleika.“

Rakel vakti fyrst athygli fyrir framúrskarandi árangur í utanvegahlaupum og krefjandi langhlaupum sem henta ekki öllum. Hún segir þó að áherslur sínar hafi breyst með tímanum; í dag hreyfir hún sig fyrst og fremst fyrir eigin vellíðan, en keppnisskapið hefur dvínað.

„Ég var með mikið keppnisskap og var að gera góða hluti í hlaupunum. Ég fór oft í hlaup sem voru yfir 100km og fannst það frábært og náði góðum árangri. Ég er ennþá góð í löngu hlaupunum, en í dag er þetta meira bara ástríða fyrir því að hreyfa mig og vera í náttúrunni heldur en að keppast við einhvern tíma. Forsendurnar eru að hafa gaman og njóta. Það er lífsstíll að hreyfa sig og eitthvað sem ég geri eiginlega alla daga. Það líður engum verr af því að hreyfa sig og þegar fólk fer að finna jákvæðu áhrifin verður það oft bara sjálfgefið að stunda reglulega hreyfingu. Ég er mjög virk og hef alltaf verið og verð hálfóróleg ef ég fæ ekki hreyfinguna mína. Það þurfa ekki allir að vera að fara í einhverja ofur-hreyfingu eða ultrahlaup. Aðalatriðið er að koma því inn í lífsstílinn að nota líkamann og hreyfa sig, hvernig svo sem fólk gerir það. Það breytist svo margt þegar hvatningin fyrir hreyfingu er ekki útlitstengd eða drifin áfram af samviskubiti, heldur að vilja líða vel. Þá hættir þetta að vera kvöð og verður einfaldlega eitthvað sem mann langar að gera alla daga.“

Heilluð af Afríku

Rakel er nýlega snúin heim úr ferðalagi þar sem hún heimsótti ýmsa staði í Afríku ásamt unnusta sínum, Guðmundi Lúther. Hún segir ferðina hafa opnað augu sín á fjölbreyttan hátt og að Afríka hafi heillað hana algjörlega.

„Ég er almennt mjög óhrædd í lífinu og kippi mér ekki upp við margt. Við Gummi eigum það sameiginlegt að elska ferðalög og fyrir mér snúast ferðalög um að upplifa eitthvað nýtt og stækka sjóndeildarhringinn. Að kynnast ólíkum menningarheimum, náttúru og öllum undrunum sem eru í boði á þessari jörð.  Ég hvet alla til að upplifa eitthvað svona allavega einu sinni á ævinni. Það stækkar sjóndeildarhringinn svo mikið að fara á staði sem eru svona rosalega ólíkir því sem við þekkjum. Það er eiginlega mitt hjartans mál að hvetja fólk til að taka stökkið og fara út fyrir þægindarammann. Ekki mikla hlutina fyrir ykkur og hræðast það að taka af skarið. Lífið verður svo margfalt fallegra og skemmtilegra ef maður gerir það. Þess vegna gladdi það mig mikið að fá líklega meira en hundrað skilaboð á hverjum degi á meðan ég var að deila efni úr Afríku-ferðinni. Mér þykir virkilega vænt um að geta veitt fólki innblástur og vonandi eru einhverjir að skipuleggja ferð til Afríku núna eftir að hafa fylgst með ferðinni okkar,“ segir Rakel, sem varð algjörlega heilluð af Afríku, ekki síst fólkinu og hjartanu í heimsálfunni

Stórkostleg upplifun

„Það er erfitt að nefna eitthvað eitt sem stendur upp úr. En ég myndi eiginlega segja að fólkið sé það sem standi mest upp úr. Þeir sem hafa komið á þessa staði vita hvað ég á við, af því að getur verið erfitt að útskýra það. En það er bara einstök upplifun að kynnast andanum í fólkinu, gleðina og viðhorfið til lífsins. Þó að það sé mikil fátækt finnur maður það hratt að gleðin er svo mikil að það yfirskyggir allt hitt. Fólkið í löndunum sem við heimsóttum er upp til hópa miklu hamingjusamara en við á Íslandi og maður hugsar stundum hvar við týndum gleðinni. Og svo finnur maður svo mikla samkennd alls staðar. Fólk sem á ekkert en virðist tilbúið að gefa þér allt. Það breytir manni einfaldlega að heimsækja þessa heimsálfu. Maður upplifir einhvern vegin að þau skilji hvað samfélag er og hvað það er mikilvægt að halda hópinn og vera í samveru og samstarfi. Þó að auðvitað séu strendurnar á Zanzibar og menningin í Cape Town í Suður-Afríku eitthvað sem er stórkostlegt að upplifa er það samt fólkið sem situr mest eftir. Það er eitthvað einstakt, stórt hjarta í Afríku sem maður finnur ekki annarstaðar. Ég verð bara klökk af því að tala um þetta,“ segir hún að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Þorgerður Katrín undirstrikar mikilvægi samskipta Íslands við Bandaríkin
Pólitík

Þorgerður Katrín undirstrikar mikilvægi samskipta Íslands við Bandaríkin

„Við áttum gott og hreinskiptið samtal“
Vilja Gylfa Þór áfram innan flokksins þrátt fyrir deilur
Pólitík

Vilja Gylfa Þór áfram innan flokksins þrátt fyrir deilur

Fjögur leikskólabörn stungin til bana
Heimur

Fjögur leikskólabörn stungin til bana

„Aftaka“ hjá Samfylkingunni á Ísafirði
Pólitík

„Aftaka“ hjá Samfylkingunni á Ísafirði

Kjartan Guð­munds­son er fallinn frá
Minning

Kjartan Guð­munds­son er fallinn frá

Hekla innkallar vinsælan rafbíl vegna eldhættu
Innlent

Hekla innkallar vinsælan rafbíl vegna eldhættu

Birkir var stundum með „helvítis vesen“ í fermingarfræðslunni
Viðtal
Fólk

Birkir var stundum með „helvítis vesen“ í fermingarfræðslunni

Íslenskir aðkomumenn ákærðir á Akureyri
Innlent

Íslenskir aðkomumenn ákærðir á Akureyri

Brasilía samþykkir einstök gæludýralög
Heimur

Brasilía samþykkir einstök gæludýralög

Ástralir grípa til aðgerða gegn veðmálafyrirtækjum
Heimur

Ástralir grípa til aðgerða gegn veðmálafyrirtækjum

Selja glæsilegt einbýli með frelsisstyttu í mannsstærð
Myndir
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með frelsisstyttu í mannsstærð

„Hrottaleg árás“ á capybara
Heimur

„Hrottaleg árás“ á capybara

Fólk

„Ég fæ einstaka sinnum einhver skítaskilaboð“
Viðtal
Fólk

„Ég fæ einstaka sinnum einhver skítaskilaboð“

Rakel María Hjaltadóttir gerir sitt besta til að vera einlæg
Fannar og Anita Brá selja í Kópavogi
Myndir
Fólk

Fannar og Anita Brá selja í Kópavogi

Birkir var stundum með „helvítis vesen“ í fermingarfræðslunni
Viðtal
Fólk

Birkir var stundum með „helvítis vesen“ í fermingarfræðslunni

Selja glæsilegt einbýli með frelsisstyttu í mannsstærð
Myndir
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með frelsisstyttu í mannsstærð

Sirrý gerð að deildarstjóra
Fólk

Sirrý gerð að deildarstjóra

Gunnar Smári hugar að krossfestingu
Fólk

Gunnar Smári hugar að krossfestingu

Loka auglýsingu