
Leonid Radvinsky, eigandi efnisveitunnar OnlyFans, er látinn, 43 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fyrirtækinu.
„Við erum mjög sorgmædd að tilkynna fráfall Leo Radvinsky. Leo lést friðsamlega eftir langa baráttu við krabbamein,“ sagði talsmaður OnlyFans og bætti við að fjölskylda hans óskaði eftir friðhelgi á þessum erfiða tíma.
Radvinsky, sem var úkraínsk-bandarískur frumkvöðull, keypti móðurfélag OnlyFans, Fenix International Limited, árið 2018 og var síðan bæði forstjóri og stærsti hluthafi þess.
Hann var þekktur fyrir að halda sig utan sviðsljóssins og veitti sjaldan viðtöl. Auk OnlyFans stofnaði hann einnig vefsíðuna MyFreeCams og stýrði fjárfestingarsjóðnum Leo, sem hann setti á laggirnar árið 2009 og einbeitir sér að fjárfestingum í tæknifyrirtækjum.
OnlyFans var stofnað árið 2016 af breska frumkvöðlinum Tim Stokely og naut mikilla vinsælda á tímum kórónuveirufaraldursins þegar fleiri sneru sér að netinu. Þá varð áskriftarþjónustan að stórum tekjulindum fyrir efnisframleiðendur víða um heim.
Fyrr á þessu ári var greint frá því að fyrirtækið væri að skoða sölu á meirihluta hlutafjár til fjárfestingafélagsins Architect Capital, í samningi sem gæti metið fyrirtækið á um 5,5 milljarða dollara.
Samkvæmt fjölmiðlum flutti Radvinsky til Bandaríkjanna sem barn og ólst upp í Chicago. Hann nam hagfræði við Northwestern-háskóla og útskrifaðist árið 2002.
Áður en hann varð eigandi OnlyFans stofnaði hann einnig vef sem tengdi notendur við klámefni á netinu undir nafninu Cybertania.

Komment