1
Innlent

MAST varar við neyslu á þekktu og vinsælu próteinstykki

2
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hjóna eftir umfangsmikið netsvindl

3
Heimur

Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni

4
Heimur

Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi

5
Heimur

Sænsk kona neydd til að vinna í svikaverksmiðju í Myanmar

6
Innlent

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns

7
Heimur

Króatar takmarka drykkju ferðamanna

8
Fólk

Vel staðsett einbýlishús í Reykjavík til sölu

9
Heimur

Átta nemendum bjargað úr föstum rússíbana

10
Heimur

Disney-stjórnandi dæmdur í fangelsi í Rússlandi

Til baka

Ester S. Jóhannsdóttir

Ofbeldissambönd skilja ekki bara eftir sár hjá konum heldur móta þau börnin líka

Nú er ég að skilja af hverju sonur minn er veikur

Ester Jóhannsdóttir
Ester S. Jóhannsdóttir
Mynd: Aðsend

Nú er ég að skilja af hverju sonur minn er veikur og það er erfitt að horfast í augu við það. Sem móðir hélt ég að ég hefði verndað hann með því að fara, að það sem hann upplifði myndi ekki hafa svona djúp áhrif. En ég sé það núna að þetta fylgdi með okkur.

Ég fór þegar synir mínir voru 3 og 5 ára til að vernda þá og ég gerði mitt besta á þeim tíma. En það var ekki nóg. Mynstrið fór ekki heldur fylgdi með mér áfram inn í lífið og inn í næstu sambönd. Ég fór aftur inn í ofbeldissamband því ég var ekki búin að vinna úr því sem ég hafði upplifað. Fyrsta ofbeldissambandið mitt setti af stað mynstur sem ég skildi ekki þá en sé skýrt í dag. Þetta snerti ekki bara mig heldur líka börnin mín.

Ofbeldissambönd byrja ekki á ofbeldi heldur á ást. Svo breytist þetta hægt, maður fer að laga sig að aðstæðum, efast um sjálfan sig og áður en maður veit af er maður fastur í hring sem er erfitt að komast út úr. Í dag sé ég þetta sem mynstur en ekki veikleika. Mynstur sem mótast af því sem maður hefur upplifað og ef maður vinnur ekki úr því heldur það áfram. Mynstrið heldur áfram þangað til maður sér það og skilur það.

Það sem hefur verið erfiðast er að horfa á son minn og sjá hvernig honum líður. Hann hefur verið mikið andlega veikur og glímt við mikla vanlíðan. Á tímabili fór hann í geðrof og lokaði sig af í einangrun og það var eins og ég væri að missa hann án þess að geta náð til hans eins og áður. Hann er 21 árs í dag en ber enn með sér það sem hann þurfti að lifa við sem barn. Barnið mitt er ekki veikt af engu, hann ber með sér það sem hann upplifði.

Í dag er ég í baráttu fyrir hann. Ég er að hringja, fylgja eftir og reyna að fá hjálp. Hann lagðist inn á geðdeild en eftir það tók við veruleiki sem ég var ekki undirbúin fyrir. Það sem hann fékk voru lyf og örfá samtöl en ekki sú eftirfylgd sem hann þurfti. Ég stóð eftir með barn sem var enn að glíma við mikla vanlíðan og átti erfitt með að hugsa um sig sjálfur.

Þegar hann varð 18 ára missti hann kerfið eins og allt ætti þá að vera í lagi. Þegar hann varð sjálfráða fékk ég þau svör að hann vildi ekki hjálp og að það væri ekki hægt að neyða hann. En hann er veikur og geðrof tekur tíma að jafna sig á. Þegar maður er í slíkri vanlíðan er dómgreindin ekki sú sama og hann er orðinn svo þreyttur að hann hefur gefist upp. Og þá stendur maður eftir sem foreldri og horfir á barnið sitt glíma án þess að geta gripið inn í.

Þetta hefur opnað augun mín fyrir því að við erum of oft að horfa á greiningar en of sjaldan á það sem liggur undir. Það er spurt hvað sé að honum en ekki hvað hann hafi þurft að lifa við. Greiningin segir ekki alla söguna. Ef við horfum ekki á rótina erum við aðeins að meðhöndla yfirborðið.

Tálmun er líka hluti af þessu sem við tölum of lítið um. Þegar tengsl barns við foreldri rofna eða veikjast hefur það djúp áhrif á öryggi þess og sjálfsmynd. Barn skilur ekki alltaf hvað er að gerast en finnur að eitthvað er ekki eins og það á að vera. Þetta situr í barninu og fylgir því áfram og getur haft áhrif á líðan og tengsl langt fram á fullorðinsár.

Þegar hann varð 18 ára missti hann kerfið eins og allt ætti þá að vera í lagi. En það er það ekki. Sárin hverfa ekki og margir í hans stöðu veikjast og einangrast. Við sleppum þeim þegar þau verða 18 ára en sárin hverfa ekki.

Við þurfum að breyta þessu. Við þurfum að byrja að spyrja hvað gerðist, ekki bara hvað er að. Við þurfum að horfa á rótina, ekki bara greininguna.

Ég er ekki að skrifa þetta til að kenna neinum um. Ég er að skrifa þetta af því ég er farin að skilja. Ég fór en mynstrið fór ekki fyrr en ég fór að sjá það og skilja það. Ofbeldissambönd móta ekki bara konur heldur börnin líka og sem móðir get ég ekki horft fram hjá því.

Ester S. Jóhannsdóttir, móðir tveggja drengja og nemi í félagsfræði við Háskóla Íslands.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi
Heimur

Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi

Ross vakti áður athygli þegar hún dæmdi Todd Chrisley í fangelsi
Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni
Myndband
Heimur

Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni

Disney-stjórnandi dæmdur í fangelsi í Rússlandi
Heimur

Disney-stjórnandi dæmdur í fangelsi í Rússlandi

Króatar takmarka drykkju ferðamanna
Heimur

Króatar takmarka drykkju ferðamanna

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns
Innlent

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns

Vel staðsett einbýlishús í Reykjavík til sölu
Myndir
Fólk

Vel staðsett einbýlishús í Reykjavík til sölu

Sænsk kona neydd til að vinna í svikaverksmiðju í Myanmar
Heimur

Sænsk kona neydd til að vinna í svikaverksmiðju í Myanmar

Átta nemendum bjargað úr föstum rússíbana
Myndband
Heimur

Átta nemendum bjargað úr föstum rússíbana

MAST varar við neyslu á þekktu og vinsælu próteinstykki
Innlent

MAST varar við neyslu á þekktu og vinsælu próteinstykki

Lögregla rannsakar dauða hjóna eftir umfangsmikið netsvindl
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hjóna eftir umfangsmikið netsvindl

Sjúkraflugmaður Schumachers rifjar upp slysið
Heimur

Sjúkraflugmaður Schumachers rifjar upp slysið

Barn, kona og karl féllu til bana úr turni í Lundúnum
Heimur

Barn, kona og karl féllu til bana úr turni í Lundúnum

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Skoðun

Þegar heimili verður að víglínu: Saga einstæðrar móður í auga hvirfilbylins
Skoðun

Margrét Rut Eddudóttir

Þegar heimili verður að víglínu: Saga einstæðrar móður í auga hvirfilbylins

Hvað segja loforðin? Orðræðugreining á öllum ellefu framboðunum
Skoðun

Halldór Jörgen Olesen

Hvað segja loforðin? Orðræðugreining á öllum ellefu framboðunum

Opið bréf til atvinnuvegaráðherra um MAST
Skoðun

Árni Stefán Árnason

Opið bréf til atvinnuvegaráðherra um MAST

Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð?
Skoðun

Arndís R. Magnúsdóttir, Gunnar Geir Kristjánsson

Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð?

SPEGILL, SPEGILL
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

SPEGILL, SPEGILL

Vinnuskólinn - vinna eða skóli?
Skoðun

Jón Hjörvar Valgarðsson

Vinnuskólinn - vinna eða skóli?

Loka auglýsingu