1
Innlent

Leigubílstjórinn Friðrik styrktur um rúma milljón

2
Fólk

Var 12 ára þegar hún byrjaði að drekka daglega

3
Landið

Ferðamenn stefndu Orra í lífshættu

4
Innlent

Leigubílstjóri sakaður um að svíkja farþega og beita ofbeldi

5
Innlent

Slökkviliðið kynnir nýjan krúttlegan starfsmann

6
Heimur

Hópslagsmál eyðilögðu samverustund fjölskyldu

7
Sport

Tapaði milljarði vegna spilafíknar en leikur í veðmálaauglýsingu

8
Menning

Tóm umslög Emmsjé Gauta

9
Minning

Helgi Vilberg Hermannsson er fallinn frá

10
Innlent

Einn fjarlægður af heimili og handtekinn

Til baka

Einkalíf Sæþórs

Sæþór Benjamín Randalsson
Mynd: Facebook

Upprisudeild Sósíalistaflokks Íslands, sem náði öllum sætum í framkvæmdastjórn flokksins á aðalfundi um helgina, er nú að kynnast veruleika stjórnmálanna.

Sæþór Benjamín Randalsson, nýkjörinn formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, sem tekur við stöðu Gunnars Smára Egilssonar, er kominn í fréttirnar vegna skjáskota af meintum kynferðislegum samskiptum hans við yfirlýstan 16 ára ungling á samfélagsmiðlinum Grindr. Sæþór segir í samtali við vefmiðilinn Nútímann, sem birti fyrst fréttina og skjáskotin, reynt að „rústa mannorði hans“. Þá segir Nútíminn aðmiðillinn hafi fengið „nokkur slík send“. Hjá Nútímanum kemur fram að Sæþór hafi orðið fyrir tilraun til fjárkúgunar, en sjálfur neitar Sæþór því í dag og segir það misskilning blaðamanns Nútímans. Þá hefur Sæþór skipt um skoðun frá því hann svaraði Nútímanum og segist nú ætla að kæra málið, en áður ætlaði hann að láta það vera.

Sæþór sagði í samtali við DV, sem birti einnig frétt um málið, að dreifing skjáskotanna væri engin tilviljun, svo skömmu eftir átakamikinn aðalfund. Hann segist ekki hafa vitað af skjáskotunum fyrr en í þessari viku.

Staðreyndin er hins vegar sú að skjáskotin fóru í dreifingu í mars, áður en það varð að hugmynd að Sæþór yrði í helsta leiðtogahlutverki Sósíalista. Það sem hefur þó breyst er að nú er Sæþór í leiðandi hlutverki í stjórnmálaafli sem sækist eftir umboði almennings og því er óumflýjanlegt að meira gagnsæi ríki um aðstæður og athæfi hans en venjulegra borgara, eins og dómafordæmi í lýðræðisríkjum bera vott um.

Önnur staðreynd er að dreifing skjáskotanna átti sér stað í svokölluðum tálbeituhópi á Telegram. Þar átti sér stað ógnandi umræða um Sæþór og fjölskyldu hans. Það sem flækir málið er að tálbeituhópar, sem upphaflega snerust um að afhjúpa meinta barnaníðinga með því að lokka þá í gildrur, færðu sig yfir í hreina fjárkúgun undir forystu fagmanna á sviði afbrota. Þessi viðsnúningur virðist hafa tengst manndrápsmáli manns frá Þorlákshöfn í mars.

Þá virðast hafa verið birtir listar yfir alls kyns aðila í tálbeituhópunum, sem sumir hverjir eru ekki grunaðir um nein brot. Aðstoðaryfirlögregluþjónn í kynferðisbrotadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu staðfesti við Mannlíf í mars að dæmi væru um að menn væru hafðir fyrir rangri sök í tálbeituhópunum.

Það er ómögulegt að fullyrða hvort Sæþór er fórnarlamb eða sekur um ósæmileg samskipti við ungling, eða bæði, en eitt er þó sannanlegt og það er að skjáskotin fóru í dreifingu löngu áður en hann varð leiðtogi Sósíalista, enda hafði Mannlíf þau undir höndum, og hitt að annarlegir fjárhagslegir hvatar voru að baki dreifingu slíkra skjáskota. Eins og oft í erfiðum málum í pólitík mun nú mest reyna á hvort Sæþór segi satt og rétt frá í umræðunni um málið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment


Hvernig virka nýju bílastæðagjöld HÍ?
Innlent

Hvernig virka nýju bílastæðagjöld HÍ?

Háskóli Íslands byrjar gjaldtöku fyrir bílastæðin á mánudaginn 18. ágúst
Skrúfuðu aftur frá eftir langt hlé
Menning

Skrúfuðu aftur frá eftir langt hlé

„Ég á barnabörn á þessum leikskóla“
Innlent

„Ég á barnabörn á þessum leikskóla“

Valdatafl kringum fund Trumps og Putins
Heimur

Valdatafl kringum fund Trumps og Putins

Tapaði milljarði vegna spilafíknar en leikur í veðmálaauglýsingu
Sport

Tapaði milljarði vegna spilafíknar en leikur í veðmálaauglýsingu

Björgunarsveitir leita að fólki
Innlent

Björgunarsveitir leita að fólki

Ungur karlmaður í gæsluvarðhaldi vegna kynferðisbrots
Innlent

Ungur karlmaður í gæsluvarðhaldi vegna kynferðisbrots

Ferðamenn stefndu Orra í lífshættu
Myndband
Landið

Ferðamenn stefndu Orra í lífshættu

Stefán Kristjánsson er látinn
Minning

Stefán Kristjánsson er látinn

Ökumenn vistvænna ferðamáta klesstu á hvor annan
Innlent

Ökumenn vistvænna ferðamáta klesstu á hvor annan

Taylor Swift tilkynnir nýja plötu
Menning

Taylor Swift tilkynnir nýja plötu

Slúður

Vendingar á vinstri vængnum
Slúður

Vendingar á vinstri vængnum

Loka auglýsingu