
Eldur Smári Kristinsson, formaður Samtakanna 22, mætti í fyrr í mánuðinum óboðinn á Kynjaþing sem haldið var Fjölbrautarskólanum við Ármúla en Heimildin greinir frá þessu.
Með honum voru nokkrir aðrir einstaklingar í för og dreifði hópurinn límmiðum, sem sagðir eru ýta undir transfóbíu. Eldur vildi ekki svara spurningum Heimildarinnar um uppákomuna en Kynjaþing var á vegum Kvenréttindafélags Íslands.
Samtökin 22, þar sem Eldur er formaður, hafa verið kölluð haturssamtök nánast frá stofnun þeirra en Anna Kristjánsdóttir, ein fyrsta trans kona Íslands, hefur sagt að eina sem samtökin hafi á stefnuskrá sinni sé að hatast út í trans fólk. Samtökin 22 segjast hins vegar vera baráttusamtök fyrir homma og lesbíur en tæplega 300 samkynhneigðir einstaklingar skrifuðu undir bréf árið 2023 þar sem var sagt að samtökin töluðu ekki fyrir hönd þeirra og væru ekki í raun ekki hagsmunasamtök fyrir samkynhneigt fólk.
Í fyrra hélt Eldur fyrirlestur á ráðstefnu á vegum Genspect samtakanna en þau hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir níð í garð trans fólks og hafa hin virtu mannréttindasamtök Southern Poverty Law Center sagt Genspect vera haturssamtök
Þá hefur Eldur verið sakaður um að hvatt Uglu Stefaníu Kristjönu Jónsdóttur, trans konu og aktívista, að fremja sjálfsvíg en hann neitaði því viðtali við Heimildina.
Komment