
Hildur Björnsdóttir
Hildur Björnsdóttir, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mátti súpa enn eina fjöruna þegar Ólafur Kr. Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, birti aðsenda grein í Morgunblaðinu á þriðjudag. Þar sakaði hann leiðtoga sinn um að hafa logið til um hagsmuni sína varðandi lóðir undir bensínstöðvar í Reykjavík.
Ólafur rekur viðskiptafléttu sem á að undirstrika að Jón Skaftason, maki Hildar og samherji Jóns Ásgeirs Jóhannessonar athafnamanns, hafi hagnast vel á viðskiptum með lóðir gamla Skeljungs. Ólafur sakar Hildi um blekkingar og feluleik. Þetta auðveldar ekki baráttu leiðtogans við að halda flokki sínum ofan við 20 prósenta múrinn í vor ...
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment