1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

5
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

6
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

7
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

8
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

9
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

10
Innlent

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum

Til baka

Maður notaði Roblox til að nálgast barn

Maðurinn ferðaðist tvívegis langa vegalengd heim til stúlkunnar og braust inn á heimilið.

Carlo Tritta
Carlo TrittaTritta mun dúsa í fangelsi næstu 28 mánuðina
Mynd: Hampshire-lögreglan

Nítján ára gamall maður hefur verið dæmdur í 28 mánaða fangelsi fyrir alvarleg brot gegn unglingsstúlku sem hann kynntist á internetinu.

Maðurinn, Carlo Tritta, komst í samband við stúlkuna í gegnum netleiknum Roblox og færði samskiptin síðar yfir á aðra miðla. Hann hélt uppi reglulegum samskiptum við hana um tíma, þrátt fyrir að hún væri undir lögaldri. Hann lét hana trúa því að þau væru í sambandi, sendi henni gjafir og skyndibita og hringdi stöðugt í hana eða sendi henni skilaboð, að sögn lögreglunnar í Hampshire.

Málið kom upp þegar móðir stúlkunnar varð vör við samskiptin og hafði samband við lögreglu í ágúst 2025. Tritta var í kjölfarið handtekinn og síðar látinn laus gegn skilyrðum um að hafa ekki samband við stúlkuna eða fjölskyldu hennar á meðan rannsókn stóð yfir.

Samkvæmt gögnum málsins braut hann þau skilyrði ítrekað og hélt áfram tilraunum til að ná sambandi. Áráttuhegðun Tritta stigmagnaðist þegar hann tilkynnti móður stúlkunnar til barnaverndar og hafði samband við lögregluna í tilraun til að fá rannsóknarlögreglumanninn fjarlægðan frá málinu.

bréf
Mynd: Hampshire-lögreglan

Hann ferðaðist einnig langa vegalengd að heimili stúlkunnar í Manchester og kom þar óboðinn inn um bakdyrnar. Þegar stúlkan, sem var skelfingu lostin, áttaði sig á því að hann hafði laumast inn í hús hennar, sagði hún honum að fara, sem hann gerði fyrst, en kom svo aftur tíu mínútum síðar til að krefjast nýja símanúmersins hennar, sem hún neitaði að gefa honum. Stúlkan samþykkti þá að fara á staðbundinn krá með Tritta bara til að fá hann burt frá húsinu. Morguninn eftir var móðir stúlkunnar að setja ruslatunnurnar út þegar hún sá Tritta fela sig bak við bílskúr. Hún réðst á hann sem varð til þess að hann hljóp á brott áður en lögreglan var kölluð til.

Tritta var handtekinn og ákærður fyrir að raska réttvísinni, sem hann játaði fyrir dómi og hann var dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundinn dóm þann 11. desember.

Þremur dögum síðar ferðaðist hann aftur til Manchester og fór inn á heimili stúlkunnar enn á ný þar sem hann stóð frammi fyrir henni og móður hennar áður en hann skemmdi eftirlitsmyndavél.

Hann var handtekinn og ákærður fyrir að hafa tvisvar hótað vitnum og fyrir að valda eignaspjöllum. Byggt á efni sem lögreglan fann í síma hans, sem hafði verið gert upptækt áður, var hann einnig ákærður fyrir þrjú tilvik af því að hafa tekið ósæmilegar myndir af barni, átt í kynferðislegum samskiptum við barn og látið barn á aldrinum 13-15 ára horfa á kynferðislegar myndir.

Tritta játaði sök fyrir dómi og var úrskurðaður í gæsluvarðhald þar til dómur féll. Dómur var kveðinn upp við Manchester Minshull Street Crown Court í dag, þar sem hann var dæmdur í 28 mánaða fangelsi.

Rannsóknarlögreglukona í málinu sagði að atvikið undirstrikaði hættur sem geta fylgt samskiptum á netinu, sérstaklega fyrir ungt fólk. Hún hvatti foreldra til að ræða við börn sín um netnotkun og vera vakandi
fyrir mögulegum áhættum.

„Tölvuleikjavettvangar ættu að vera rými þar sem fólk, sérstaklega börn, er öruggt. Nafnleysi internetsins gerir hættulegum einstaklingum eins og Tritta kleift að nýta sér aðra í eigin þágu og það er hneykslanlegt hversu langt Tritta gekk til að viðhalda misnotkun sinni á þessari ungu stúlku. Stúlkan og móðir hennar eiga báðar hrós skilið fyrir hugrekki sitt sem nú hefur leitt til þess að Tritta hefur verið skellt í fangelsi. Ég hvet foreldra til að ræða opinskátt við börn sín um hvernig þau nota internetið og ef þið hafið einhverjar áhyggjur, treystið þá innsæi ykkar og tilkynnið það til lögreglu.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

Maðurinn er fæddur 7. janúar 1991 og er því 35 ára gamall.
Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Ólífuuppskera breyttist í blóðbað
Heimur

Ólífuuppskera breyttist í blóðbað

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

Símtal varpar nýju ljósi á mál um meinta hópnauðgun við Cornell-háskóla
Heimur

Símtal varpar nýju ljósi á mál um meinta hópnauðgun við Cornell-háskóla

Sameina raddir sínar í Hallgrímskirkju til minningar um fórnarlömb stríðs
Menning

Sameina raddir sínar í Hallgrímskirkju til minningar um fórnarlömb stríðs

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins
Myndir
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Heimur

Ólífuuppskera breyttist í blóðbað
Heimur

Ólífuuppskera breyttist í blóðbað

Einn skotinn til bana og 16 særðir við ólífuuppskeru
Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Símtal varpar nýju ljósi á mál um meinta hópnauðgun við Cornell-háskóla
Heimur

Símtal varpar nýju ljósi á mál um meinta hópnauðgun við Cornell-háskóla

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Loka auglýsingu