1
Landið

„Þess vegna er þetta dauðasvæði“

2
Fólk

Dalmatíuhundur Eddu Bjarkar leiddi hana upp að altarinu

3
Innlent

Drengurinn fundinn

4
Innlent

Grímuklæddir menn eltu flogaveikan

5
Innlent

Drengur lést þegar dráttarvél fór í Hvítá

6
Landið

Séra María Guðrún fer í Hofsprestakall

7
Pólitík

„Verndarþátturinn veikst og stöðugt að honum sótt“

8
Innlent

Ökuníðingur á nagladekkjum reif kjaft við lögregluna

9
Pólitík

Ólafur Þór verður sveitarstjóri

10
Pólitík

Vogar hafna sameiningu

Til baka

Frumkvöðlakonur styrktar

Alls fengu 19 verkefni styrk þetta árið

Inga Sæland Konur
Inga Sæland með styrkþegumArna Sigrún Haraldsdóttir ætlar að framleiða fatnað fyrir hreyfihamlaða
Mynd: Robert Z

Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað á dögunum og veitti Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, þá. Greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað frá 1991 og eru þeir ætlaðir konum sem eru frumkvöðlar eða fyrirtækjum í þeirra eigu. Skilyrði styrkveitinga eru að verkefnin séu í meirihlutaeigu kvenna, stjórnað af þeim og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi. 

Í ár bárust 239 umsóknir og alls fengu 19 verkefni styrki að fjárhæð samtals 38.000.000 kr. 

Hæstu styrkir námu fjórum milljónum og hlutu fjögur verkefni þá upphæð:

Guðrún Heimisdóttir og Erna Niluka Njálsdóttir fyrir hönd Hvað nú?
Styrkur vegna verkefnisins Hvað nú? Markmið þess er að vera fyrsta heildstæða stuðningskerfið fyrir syrgjendur á Íslandi sem tryggir að þeir fái skýrar leiðbeiningar og aðstoð við að vinna úr þeim verkefnum sem fylgja ástvinamissi.

Ragnhildur Sigurðardóttir fyrir hönd Góðir dagar ehf.
Styrkur vegna verkefnisins Heyband en markmið þess er að finna lausnir á endurvinnslu á notuðu heyneti sem fellur til í verulegu magni hvarvetna þar sem landbúnaður er til staðar.

Rósa Dögg Þorsteinsdóttir fyrir hönd Visttorg ehf.
Styrkur vegna verkefnisins „Þróun sjálfvirkrar gagnaöflunar og gervigreindarlausna fyrir Vistbók“ en Vistbók er gagnadrifin lausn sem mun bjóða upp á sjálfvirka gagnaöflun, rauntímagreiningu og miðlun vistvænna gagna inn í aðfangakerfi byggingargeirans.

Arna Sigrún Haraldsdóttir
Styrkur til að vinna að vöruþróun og framleiðslu á fatnaði sem hentar hreyfihömluðum þar sem venjulegur fatnaður hentar ekki fólki sem er í hjólastól.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Eddad Björk Arnardóttir2
Fólk

Dalmatíuhundur Eddu Bjarkar leiddi hana upp að altarinu

Þyrla Landhelgisgæslunnar
Innlent

Leit stendur yfir að sundmanni við Örfirisey

Lögreglan
Innlent

Ökuníðingur á nagladekkjum reif kjaft við lögregluna

Kerti
Innlent

Drengur lést þegar dráttarvél fór í Hvítá

Guðmundur Ingi og Svandís Svavarsdóttir mynd VG
Pólitík

„Verndarþátturinn veikst og stöðugt að honum sótt“

Loka auglýsingu