1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

4
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

5
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

6
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

7
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

8
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

9
Innlent

Fjórir bílar í alvarlegu umferðarslysi

10
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Til baka

Fundu lík tveggja manna 34 árum eftir hvarf þeirra

DNA-rannsókn hefur nú staðfest að um sé að ræða tvo belgíska menn

Sion
Sion í Sviss
Mynd: Chensiyuan/Wikipedia

Lík tveggja belgískra fjallgöngumanna, sem hurfu í svissnesku Ölpunum fyrir 34 árum, hafa fundist í Trift-jöklinum í suðurhluta Sviss. Bráðnun jökulsins varð til þess að lík mannanna komu í ljós eftir áratugi í ísnum.

Lögreglan í Wallis greindi frá því á miðvikudag að göngumaður hefði tilkynnt um tvö lík á jöklinum 26. júlí síðastliðinn. Trift-jökullinn er skammt frá landamærum Sviss og Ítalíu.

Líkin voru flutt á réttarlæknisfræðideild sjúkrahússins í Wallis í Sion þar sem unnið var að því að bera kennsl á mennina. DNA-rannsókn hefur nú staðfest að um sé að ræða tvo belgíska fjallgöngumenn sem hurfu á Weissmies-svæðinu árið 1992.

Mennirnir voru 39 og 41 árs þegar þeirra var saknað. Ekki kemur fram í tilkynningu lögreglu með hvaða hætti þeir létust.

Lögreglan í Wallis heldur skrá yfir einstaklinga sem hafa horfið á svæðinu allt aftur til ársins 1925. Flest þeirra mála tengjast háfjallasvæðum og ám.

Bráðnun jökla af völdum hlýnandi loftslags hefur á undanförnum árum leitt til þess að líkamsleifar fólks, sem horfið hefur í fjöllum áratugum áður, hafa komið í ljós.

Á síðasta ári fundust meðal annars bein svissnesks fjallgöngumanns á jökli við Ober Gabelhorn-fjall í Wallis. Sá hafði horfið árið 1994 og líkamsleifar hans því verið í ísnum í um þrjá áratugi áður en þær fundust.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu