
Nokkur verkefni komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag, meðal annars vegna hraðaksturs, þjófnaðar og gruns um innbrot.
Lögregla stöðvaði ökumann í Laugardalnum í Reykjavík eftir að hann mældist á 120 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Málið var afgreitt á vettvangi.
Annar ökumaður var einnig stöðvaður í sama hverfi. Sá ók á 90 km/klst þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km/klst. Það mál var sömuleiðis afgreitt á vettvangi.
Í miðborg Reykjavíkur barst lögreglu tilkynning um ölvaðan einstakling sem hafði sofnað og var óskað eftir að hann yrði fjarlægður. Lögreglumenn komu á vettvang og vísuðu manninum á brott án frekari vandræða.
Þá var tilkynnt um þjófnað úr verslun í Reykjavík. Lögregla sinnti málinu og var það afgreitt á vettvangi.
Í Hafnarfirði barst lögreglu jafnframt tilkynning um grunsamlega einstaklinga í bifreið. Þegar lögreglumenn komu á vettvang kom í ljós að þar voru félagar sem sátu saman og spjölluðu og reyndist því ekkert saknæmt vera á seyði.
Að lokum var einstaklingur handtekinn, grunaður um innbrot og þjófnað. Hann var færður í fangaklefa þar sem hann var vistaður vegna rannsóknar málsins.
