1
Fólk

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista

2
Innlent

Maður varð fyrir hrottalegri hópárás ungmenna

3
Innlent

Harður árekstur á Grensásvegi

4
Innlent

Lögreglan gerir athugasemd við orðanotkun fjölmiðla

5
Innlent

Segir þrýsting Ísraela aukast á Íslandi

6
Innlent

Ákærður fyrir skjalafals og brot á útlendingalögum

7
Innlent

Laugardalsmaður dæmdur fyrir hylmingu

8
Skoðun

Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur

9
Peningar

Landsbankinn mokar inn peningum

10
Innlent

Drukkin kona flutt á slysadeild

Til baka

„Hann er búinn að þjálfa krakka með því að spila linnulaust útum allan bæ“

Reykvíkingur ársins 2025 er Ingi Garðar Erlendsson stjórnandi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og Miðbæjar

Reykvíkingur ársins 2025
Heiða Björg borgarstjóri og Ingi GarðarUndirbúa veiði
Mynd: Reykjavíkurborg

Það var Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri sem tilkynnti um valið á bökkum Elliðaár í morgun, en þetta er í 15. sinn sem Reykvíkingur ársins er valinn.

Reykvíkingur ársins var útnefndur í fyrsta sinn árið 2011.

Tilgangurinn var að leita að einstaklingi sem hefur, með háttsemi sinni eða atferli, verið til fyrirmyndar á einhvern hátt og þakka fyrir þeirra framlag.

Ingi Garðar hefur stýrt Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar frá árinu 2019.

Ingi Garðar er básúnuleikari og tónlistarkennari með BA próf og MA próf í tónsmíðum og diplóma í hljóðfræði. Hann er tónskáld og hefur meðal annars unnið útsetningar fyrir hljómsveitir.

Óskað var eftir tilnefningum um Reykvíking ársins í byrjun maí, og um miðjan júní var farið yfir tilnefningarnar og tekin ákvörðun um að veita Inga Garðari titilinn.

Í tilnefningum kom meðal annars fram að hann haldi úti stórkostlegu starfi og sé sannkölluð fyrirmynd fyrir börnin og þau sem að starfi hljómsveitarinnar koma. Ennfremur segir að Ingi Garðar hafi ávallt mætt nemendum sínum með skilningi og hann skapi umhverfi þar sem börnin eru metin að verðleikum og geti blómstrað sem tónlistarfólk.

Undir stjórn Inga Garðars hafa nemendur fengið margskonar tækifæri til þess að koma fram og spila. Þau spiluðu á sviði í Borgarleikhúsinu í leikritinu Fía Sól gefst aldri upp og einnig í dansverkinu Hringir Orfeausarog annað slúður eftir Ernu Ómarsdóttur, sömdu tónverk og fluttu við opnun tónlistarhátíðarinnar Myrkir Músíkdagar og komu fram með hljómsveitinni Sigur Rós í Laugardalshöll svo eitthvað sé nefnt.

Í lok maí mánaðar voru svo tónleikar haldnir í Háskólabíói þar sem Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar undir stjórn Inga Garðars, Benni Hemm Hemm og Kórinn leiddu saman hesta sína í tilefni af því að 20 ár voru liðin frá útgáfu fyrstu plötu Benna.

Sú plata, sem bar einfaldlega nafnið Benni Hemm Hemm innihélt 12 lög og kom út árið 2005.

Platan var flutt í heild sinni fyrir fullu húsi á tónleikunum í Háskólabíói.

Tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm segir að það sem Ingi Garðar Erlendsson sé að gera með Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar sé stórvirki og eigi eftir að verða goðsagnakennt dæmi þegar fram líða stundir.

„Hann gaf sér mánuð til að æfa upp alla fyrstu Benna Hemm Hemm plötuna, sem er fullkomlega óraunhæft plan fyrir skólahljómsveit. Hann er búinn að þjálfa þessa krakka upp með því að spila linnulaust útum allan bæ - með hljómsveitum, á leiksviði, á elliheimilum, á leikskólum, á vorhátíðum og svona er hægt að telja endalaust. Afraksturinn er sá að þessi hljómsveit getur fengið lög í erfiðum tóntegundum, með sífelldum takttegundaskiptum og ég veit ekki hvað - og spilað bara beint á fyrstu æfingu. Og þau geta ekki bara spilað sig í gegnum lögin, heldur ná þau í örfáum atrennum að finna rétta fílínginn og spila ótrúlega vel. Þetta er flott tónlistarfólk með frábæran stjórnanda“, segir Benni Hemm Hemm.

Reykvíkingur ársins var að vonum ánægður með titilinn.

„Útnefningin kom mér mjög á óvart, og það er virkilega ánægjulegt að fá viðurkenningu fyrir starfið sitt og þetta mun örugglega hvetja mig áfram. En þetta er líka gefandi starf og ég vil þakka frábæru krökkunum í skólahljómsveitinni, þau eiga stóran hlut í þessari viðurkenningu ásamt samstarfsfólkinu mínu auðvitað, öllum hljóðfærakennurunum og þá sérstaklega Svanhildi Lóu Bergsveinsdóttur sem er með mér í hljómsveitarstarfinu og mín hægri hönd.“ segir Ingi Garðar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Albert Finnbogason selur hlýlega íbúð
Myndir
Fólk

Albert Finnbogason selur hlýlega íbúð

Íbúðin skiptist á tvær hæðir og býður upp á rúmgóða stofu
Drukkin kona flutt á slysadeild
Innlent

Drukkin kona flutt á slysadeild

Segir þrýsting Ísraela aukast á Íslandi
Innlent

Segir þrýsting Ísraela aukast á Íslandi

Harður árekstur á Grensásvegi
Innlent

Harður árekstur á Grensásvegi

Landsbankinn mokar inn peningum
Peningar

Landsbankinn mokar inn peningum

Laugardalsmaður dæmdur fyrir hylmingu
Innlent

Laugardalsmaður dæmdur fyrir hylmingu

Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur
Skoðun

Davíð Már Sigurðsson

Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur

Ákærður fyrir skjalafals og brot á útlendingalögum
Innlent

Ákærður fyrir skjalafals og brot á útlendingalögum

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista
Myndir
Fólk

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista

Lögreglan gerir athugasemd við orðanotkun fjölmiðla
Innlent

Lögreglan gerir athugasemd við orðanotkun fjölmiðla

Maður varð fyrir hrottalegri hópárás ungmenna
Innlent

Maður varð fyrir hrottalegri hópárás ungmenna

Rússneskur hermaður myrti konu eftir fimm klukkustunda gíslatöku
Heimur

Rússneskur hermaður myrti konu eftir fimm klukkustunda gíslatöku

Fólk

Albert Finnbogason selur hlýlega íbúð
Myndir
Fólk

Albert Finnbogason selur hlýlega íbúð

Íbúðin skiptist á tvær hæðir og býður upp á rúmgóða stofu
Glæsilegt einbýlishús með sjávarútsýni á Seltjarnarnesi til sölu
Myndir
Fólk

Glæsilegt einbýlishús með sjávarútsýni á Seltjarnarnesi til sölu

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista
Myndir
Fólk

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista

Það stefnir allt í kojufyllirí hjá Önnu Kristjáns
Fólk

Það stefnir allt í kojufyllirí hjá Önnu Kristjáns

Illugi lýsir augnabliki fegurðar í heita pottinum
Fólk

Illugi lýsir augnabliki fegurðar í heita pottinum

Stjörnulögmaður fær nýja vinnu
Fólk

Stjörnulögmaður fær nýja vinnu

Loka auglýsingu