
Bruninn á Hjarðarhaga nýverið hefur vakið upp umræðu um stöðu erlends verkafólks á íslenskum leigumarkaði, fólks sem býr í herbergjahótelum. En með herbergjahótelum er átt við fasteignir þar sem fólk sem er alls ótengt býr í herbergjum og deilir eldhúsaðstöðu og salerni.
Einn af þeim sem orðinn er nokkuð stórtækur á þessum leigumarkaði með herbergi er Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur og prófessor, eins og fram kemur í þættinum Þetta helst sem er á dagskrá RÚV.
Veðurfræðingurinn og prófessorinn Haraldur á tíu íbúðir í Reykjavík, skráðar í tveimur einkahlutafélögum. Hafa margir ótengdir einstaklingar búið í hluta þessara eigna um langt árabil. Einkahlutafélögin Haraldar heita Mótel Venus ehf. og Miklabraut ehf.
Þáttastjórnandinn Ingi Freyr Vilhjálmsson ræddi við Harald í síma í fjörutíu mínútur. Haraldur vildi þó ekki koma í viðtal hjá Inga Frey sem þess í stað tiltók það helsta úr símtali þeirra.
Haraldur veðurfræðingur sá um útleigu og rekstur íbúðanna sjálfur, en hætti því fyrir tveimur árum vegna þess að starfinu fylgi mikil vinna og vesen; og að þetta sé ekki arðbær rekstur og þjónusta.
Kemur fram í máli Inga Freys að Haraldur hafi litið á sig sem einskonar félagsmálaþjónustu; og að hann hafi aðstoðað og skotið skjólshúsi yfir fólk er átti ekki í nein önnur hús að venda.
Haraldur segist helst af öllu vilja selja fasteignirnar enda hafi ýmislegt gengið á í útleigunni sem gerði það að verkum að hann hætti daglegum rekstri fasteignanna og lét annan um það verk.
Fasteignir Haraldar eru í heildina metnar á 362 milljónir króna.
Komment