
Gríðarleg ólga er innan Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson tryggði að ekkert mótframboð yrði gegn Hildi Björnsdóttur, sitjandi leiðtoga með því að draga fram á síðustu stund að segja til um framboðsleysi sitt. Ágreiningur hefur verið um Hildi og er hún sögð vinafá í borgarstjórnarflokknum.
Hermt er að flestir núverandi borgarfulltrúa flokksins sjái fram á nótt hina löngu hnífa þegar kemur að uppstillingu og fæstir muni fá brautargengi. Meðal þeirra mörgu sem hugleiða flótta frá hildarleiknum er baráttumaðurinn og varaborgarfulltrúinn Helgi Áss Grétarsson sem hefur verið gagnrýninn á leiðtogann. Hann gælir við þá hugmynd að vippa sér yfir í Miðflokkinn og komast undan hrammi Hildar.
Lagt er að Brynjari Níelssyni, fyrrverandi dómara og þingmanni, að gefa kost á sér í annað sætið á eftir Hildi og reyna þannig að forða hulduher Guðlaugs Þórs frá algjörri útrýmingu og tryggja honum einhver áhrif. Brynjar er atvinnulaus og gæti verið ginnkeyptur fyrir starfi sem gefur hátt í tvær milljónir króna á mánuði ...
Komment