
Hópárás átti sér stað um helgina í Waikiki á Hawaii þegar hópur mótmælenda réðst á mann sem var klæddur eins og starfsmenn bandarísku innflytjendaeftirlitsins, eða ICE eins og það er yfirleitt kallað.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Honolulu hófst átökin þegar einn mótmælandi kastaði vökva á manninn, sem var í búningi sem líktist einkennisfatnaði ICE. Í kjölfarið brutust út átök sem þróuðust hratt í hópárás.
Myndbandsupptökur sem birst hafa á samfélagsmiðlum sýna hvernig margir einstaklingar fella manninn til jarðar og beita hann bæði höggum og spörkum. Þar á meðal sést kona sparka ítrekað í höfuð hans, auk þess sem hún virðist fyrir mistök hitta annan mann sem tók þátt í árásinni.
Þrátt fyrir áverka, þar á meðal blóðnasir, tókst manninum að rísa á fætur eftir árásina.
Lögreglan staðfestir að atvikið hafi átt sér stað á laugardagskvöld og að 15 ára piltur hafi verið handtekinn, grunaður um líkamsárás. Málið er enn til rannsóknar og útiloka lögregluyfirvöld ekki frekari handtökur.
Óvíst er hvort maðurinn hafi í raun verið starfsmaður ICE eða einungis klæddur í slíkan búning. Yfirvöld hafa hvorki staðfest né neitað því.

Komment