
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt og í gærkvöldi og sinnti fjölbreyttum verkefnum, þar á meðal umferðareftirliti, útköllum vegna ágreinings og tilkynningum um grunsamlega hegðun.
Töluverð umferðarlagabrot komu til kasta lögreglu. Afskipti voru höfð af ökumanni vegna gerðar og búnaðar ökutækis og má hann eiga von á smávægilegri sekt. Þá var annar ökumaður stöðvaður eftir að hafa ekki virt forgang við gatnamót og voru gerðar athugasemdir við ökuhraða hans. Einnig var ökumaður stöðvaður fyrir að aka gegn rauðu ljósi.
Grunur um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna leiddi til handtöku eins ökumanns. Þá voru afskipti höfð af alls sex ökumönnum til viðbótar, annars vegar þremur vegna aksturs undir áhrifum áfengis og fíkniefna auk þess að vera án ökuréttinda, og hins vegar þremur vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Lögreglu barst einnig tilkynning um ágreining vegna fjárhagsmála þar sem kastast mun hafa í kekki. Annar aðilinn hefur verið kærður fyrir líkamsárás og er málið nú til rannsóknar.
Tilkynning barst um mann sem talinn var selja fíkniefni við verslunarmiðstöð og kannaði lögregla málið á vettvangi. Þá var einnig brugðist við tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir þar sem menn voru sagðir hafa verið að taka í hurðarhúna á bifreiðum.
Í öðrum verkefnum fjarlægði lögregla skráningarmerki af tveimur bifreiðum vegna vanrækslu á aðalskoðun. Einnig var brugðist við tilkynningu um ölvaðan mann sem var staddur úti á miðri götu og var málið leyst á vettvangi.

Komment