Á einum gróðursælasta og skjólgóðasta stað í Reykjanesbæ hefur verið sett á sölu glæsilegt einbýlishús við Miðgarð 11.
Um er að ræða vel viðhaldið hús sem reist var árið 1974.
Eignin er staðsett innst í botnlanga, sem veitir aukið næði og rólegt umhverfi. Heildarstærð fasteignarinnar er 304 fermetrar. Þar af er íbúðarhúsið sjálft 194,8 fermetrar, sambyggður bílskúr 53,5 fermetrar og að auki stendur á lóðinni 56 fermetra tvöfaldur sérstæður bílskúr sem byggður var árið 1993. Sá bílskúr er búinn geymslu og millilofti, sem eykur notagildi hans verulega.
Lóðin er sérstaklega gróðursæl og vel skipulögð, með glæsilegum lokuðum palli þar sem finna má heitan pott sem býður upp á notalega aðstöðu til útivistar allt árið um kring.
Samkvæmt auglýsingu er um að ræða afar vandaða og rúmgóða eign á eftirsóttum stað, sem hentar vel fjölskyldum sem leita að rólegu og skjólgóðu umhverfi með góðu aðgengi að þjónustu.
Ásett verð á eigninni er 149 milljónir króna.


Komment