
Rapparinn Lil Poppa, sem var vinsæll listamaður frá Jacksonville í Flórída, er látinn, samkvæmt heimildum TMZ.
Skrifstofa réttarmeinafræðings í Fulton-sýslu í Georgíu staðfesti við TMZ að rapparinn, sem hét réttu nafni Janarious Mykel Wheeler, hafi verið úrskurðaður látinn í gær klukkan 11:23 að staðartíma á austurströnd Bandaríkjanna. Dánarorsök hefur ekki verið gefin upp að svo stöddu.
Lil Poppa var samningsbundinn útgáfufyrirtækinu Collective Music Group (CMG), sem rapparinn Yo Gotti stofnaði. Hann gaf út fjölda vinsælla laga á undanförnum árum, þar á meðal Love & War, Mind Over Matter og HAPPY TEARS.
Í ágúst gaf hann út 16 laga plötuna Almost Normal Again og á síðasta föstudag kom út nýr smáskífa hans, Out of Town Bae. Lil Poppa átti að koma fram á tónleikum í New Orleans í næsta mánuði.
Skrifstofa réttarmeinafræðings í Fulton-sýslu í Georgíu staðfesti við TMZ að rapparinn, sem hét réttu nafni Janarious Mykel Wheeler, hafi verið úrskurðaður látinn í g klukkan 11:23 að staðartíma á austurströnd Bandaríkjanna. Dánarorsök hefur ekki verið gefin upp að svo stöddu.

Komment