
Sænska listakonan Julia Mai, sem stendur að baki veggverkinu Free Palestine á Vegamótastíg í miðbæ Reykjavíkur, hefur hrundið af stað nýju alþjóðlegu listaverkefni undir heitinu Island to Island.
Veggverkið í miðborginni hefur vakið talsverða athygli undanfarið, bæði stuðning og gagnrýni, og hlotið umfjöllun í alþjóðlegum fjölmiðlum, meðal annars hjá Al Jazeera, auk þess sem áhrifavaldar víða um heim hafa fjallað um verkið.
Nýja verkefnið felst í því að mála stór augu á eyjum víða um Evrópu. Að sögn Juliu tákna augun vitni og nærveru sem horfir og neitar að líta undan. Markmiðið er að tengja saman eyjasamfélög með myndmáli sem vísar til samstöðu, ábyrgðar og sameiginlegrar mannlegrar reynslu.
Verkefnið hefst á Íslandi og er stefnt að því að næstu verk verði unnin á eyjum í Grikklandi og á Írlandi.
Hluti af hugmyndafræði verkefnisins er að skrá hvert verk með hliðrænum myndavélum sem framleiddar voru fyrir árið 1948. Með því vill listakonan skapa tengingu milli fortíðar og samtímans.
Verkefnið er nú í hópfjármögnun á Karolina Fund og hefur þegar fengið fyrstu stuðningsaðila.

Komment