Ónefnd kona hefur verið dæmd í fangelsi fyrir umferðar- og hegningarlagabrot en dómurinn var birtur fyrir helgi.
Hún var ákærð fyrir að hafa ekið full yfir vinstri fót manns árið 2023 þegar hún ók um Engjaveg í Laugardalnum og meiddist maðurinn á ökkla og fæti. Maður reyndist vera hluti af stuðningsmannahópi sem hafði komið saman vegna landsleiks.
Málið var tilkynnt til lögreglu sem handtók konuna við Kringluna. Hún reyndist vera yfir leyfilegum áfengismörkum og sagðist síðast hafa drukkið um kl. 7 um morguninn eftir næturlangt samkvæmi.
Konan sagði að hún hefði flautað á hópinn í gríni en þeir brugðist við með því að sparka í bílinn og berja á honum, sem hafi valdið henni ótta. Stuðningsmennirnir neituðu þessu, og eftirlitsmyndavélar bentu til að henni hefði ekki stafað hætta. Myndband sýndi hana aka ógætilega framhjá hópnum sem hafði að hluta lokað götunni.
Hún var dæmd í Héraðsdómi Norðurlands vestra í 30 daga skilorðsbundið fangelsi, sviptingu ökuréttar í mánuð og 110 þúsund króna sekt.
Þá þarf hún að greiða rúma milljón í miskabætur.

Komment