1
Fólk

Dómsmáli Eddu Falak lokið

2
Innlent

Gerðu þarfir sínar á gólfið á stórtónleikum

3
Fólk

Tengdasonur Bjarna Ben hafður að háði af Agli Helga og Emmsjé Gauta

4
Fólk

Rokkdrottning selur í 101

5
Innlent

Fyrrum þingmaður segir kynþáttahatara hafa komið saman á Austurvelli

6
Innlent

Einn liggur þungt haldinn á bráðamóttöku eftir líkamsárás

7
Heimur

250 milljónir býflugna sluppu eftir slys

8
Peningar

Hefur litlar áhyggjur af gjaldtöku við náttúruperlur

9
Innlent

Sigur sundgesta

10
Peningar

Lukkunar pamfíll fær rúmar 50 milljónir

Til baka

Matgæðingur fluttur á bráðamóttökuna

Áfengi og pítsa varð honum að falli

Landspítalinn
Sex gistu fangageymslu lögregluMyndin tengist fréttinni ekki beint
Mynd: Byggingar.is

Í dagbók lögreglu frá því í nótt er greint frá því að þrír ökumenn hafi verið handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þeir voru fluttir á lögreglustöð í hefðbundið ferli.

Einn maður var handtekinn fyrir að fara ekki eftir ítrekuðum fyrirmælum lögreglu, hann hafði einnig í hótunum við starfsfólk á hóteli. Hann var í engu ástandi til þess að vera meðal almennings sökum annarlegs ástands. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð til vistunar.

Lögregla fékk tilkynningu um mann sem var að stunda eignarspjöll og var viðkomandi handtekinn. Hann var svo vistaður í klefa í þágu rannsóknar. Þá var einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og brot á vopnalögum. Hann var að sögn lögreglu vistaður í fangaklefa.

Eldur i gervigrasi

Tilkynnt var um ökumann sem ók á staur og gekk í burtu frá vettvangi. Lögregla fann ökumann stuttu síðar, hann var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Hann var fluttur á lögreglustöð þar sem dregið var úr honum blóð. Hann var síðan vistaður í klefa í þágu rannsóknar.

Tilkynnt var um rafhlaupahjólaslys þar sem ökumaður hjólsins ók á tré en ökumaðurinn hélt á pítsu í annarri hendi og reyndi að stýra hjólinu með hinni. Hann reyndist vera undir áhrifum áfengis. Hann var fluttur á bráðamóttökuna þar var dregið úr honum blóð í þágu rannsóknar.

Kveikt var í gervigrasi á höfuðborgarsvæðinu að sögn lögreglu en búið var að slökkva eldinn þegar lögregla mætti á svæðið. Meintir brennuvargar fundust ekki.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


laugardalshöll 3
Innlent

Tónleikagestir beinbrotnuðu vegna troðnings

Ásthildur Lóa
Pólitík

Ásthildur Lóa vill verða ráðherra aftur eftir skandalinn

egill bjarni gauti
Fólk

Tengdasonur Bjarna Ben hafður að háði af Agli Helga og Emmsjé Gauta

MótmæliRÚV
Innlent

Fyrrum þingmaður segir kynþáttahatara hafa komið saman á Austurvelli

peningar
Peningar

Lukkunar pamfíll fær rúmar 50 milljónir

bráðamóttakan - landspítalinn
Innlent

Einn fluttur á bráðamóttökuna eftir líkamsárás á bar

Laugardalshöll
Innlent

Gerðu þarfir sínar á gólfið á stórtónleikum

Loka auglýsingu