
Meint hópnauðgun sem átti sér stað í Höfðahverfi í Árbænum er ennþá í rannsókn en hún á að hafa átt sér stað fyrir rúmum sex vikum síðan. Þetta staðfestir Bylgja Hrönn Baldursdóttir, lögreglufulltrúi hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar, í samtali við Mannlíf.
Allir mennirnir þrír sem handteknir voru eru af erlendum uppruna og koma frá ólíkum Evrópulöndum, en konan er íslensk, að sögn heimildarmanna. Samkvæmt heimildum Mannlífs er grunur um að konunni hafi verið byrluð ólyfjan. Einn mannanna er sagður vera vinur konunnar.
Aðstæður á vettvangi voru einstaklega ógeðfelldar samkvæmt heimildum Mannlífs. „Aðstæður á vettvangi voru ekki ósvipaðar og í sumum málum hjá okkur, óhreinindi þar á meðal,“ sagði Bylgja þegar hún var spurð út í það um miðjan apríl.
Komment