
Mosfellsbær og Samtökin '78 hafa endurnýjað samstarf sitt um hinsegin fræðslu og ráðgjöf við sveitarfélagið en þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum.
Þar segir að upphaflegi samningurinn, sem undirritaður var árið 2023 til þriggja ára, hafi falið í sér árlega fræðslu fyrir nemendur í 3., 6. og 9. bekk, auk fræðslu fyrir starfsfólk skóla, félagsmiðstöðva og íþróttamiðstöðva. Þá fengu ungmenni, aðstandendur og fagfólk í bænum einnig aðgang að gjaldfrjálsri ráðgjöf frá Samtökunum 78.
Samkvæmt tilkynningunni gildir nýi samningurinn til ársins 2029 og tryggir áframhald þessarar fræðslu og ráðgjafar næstu þrjú skólaár. Með honum vill Mosfellsbær undirstrika mikilvægi þess að skólasamfélagið búi yfir þekkingu á hinsegin málefnum og taki virkan þátt í umræðu um fjölbreytileika í víðasta samhengi. Jafnframt er lögð áhersla á að þeir sem starfa með börnum og ungmennum fái nauðsynlegan stuðning til að efla jákvæða umræðu og vinna gegn fordómum, einelti og ofbeldi.

Komment