
Innan Sjálfstæðisflokksins ríkir nánast krísuástand vegna fylgishruns og flótta rótgróinna flokksmanna yfir í Miðflokkinn og aðra heillavænlegri flokka. Guðrún Hafsteinsdóttir hefur ekki náð að rétta við fylgi flokksins sem fráfarandi Bjarni Benediktsson skildi við í sögulegri lægð.
Fylgið hefur haldið áfram að leka út og er nú svo komið samkvæmt mælingum að flokkurinn er sá þriðji stærsti í landinu á eftir Samfylkingu og Miðflokki. Ofan á alla þessa skelfingu bætist að mygla er í Valhöll sem er þess utan í söluferli. Ástandið á Valhöll er þannig svipað og á flokknum sem þjáist af ýmsum innanmeinum sem jafnvel eru talin ólæknandi.
Rótgrónir og innmúraðir Sjálfstæðismenn leita nú logandi ljósi í myrkviðum flokksins að arftaka Guðrúnar og Jens Garðars Helgasonar varaformanns sem þykir einstaklega óheppinn. Einhverjir telja sig sjá ljósið í Orra Haukssyni, fyrrverandi forstjóra Símans. Vandinn er sá að ekki er landsfundur fyrr en á næsta ári, ef allt fer eftir áætlun, og litlar líkur eru á því að Guðrún víki áður ...
Komment