
Atvikið átti sér stað í höfuðborginniLögreglumaðurinn kenndi til eymsla samkvæmt dóminum
Mynd: Shutterstock
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Nataliu Wolak í tveggja mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.
Natalia var dæmd fyrir að hafa slegið lögreglumann utandyra í Reykjavík með opnum lófa í andlit með þeim afleiðingum að hann kenndi til eymsla, en lögreglumaðurinn var við skyldustörf þegar árásin átti sér.
Samkvæmt dóminum gerðist atvikið föstudaginn 23. júní árið 2023 og játaði Natalía brot sitt fyrir dómstólum en samkvæmt sakavottorði hafði hún ekki brotið af sér áður.
Tveggja mánaða fangelsisdómur hennar er skilorðsbundinn til tveggja ára og þarf hún að greiða þóknun verjanda sína en sú upphæð nemur 234.360 krónum.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Komment